Thursday, September 16, 2010

Stofnfundur Sleðahundaklúbbs Íslands

Við fórum á stofnfund Sleðahundaklúbbs Íslands í kvöld.
BH var í undirbúningsnefnd og var einnig kosin í stjórn. Kristín Arna var einnig kosin í stjórn. Við erum rosalega stolt af þessum Siberian Express kúskum sem ætla að sinna starfi sínu vel fyrir okkur hin :) Til hamingju með stjórnarstöðuna.

Stjórnin er semsagt Anna Marín formaður
Baldvin, Kári, Kristín og Dagga stjórnarmeðlimir :)

Við óskum klúbbinum góðs gengis og vonumst eftir skemmtilegu starfi í vetur.

Fundargerð mun koma inn seinna á www.sledahundar.is

Tuesday, September 14, 2010

Kúsk hjóla túr

BH, ABE , SRS fóru í kúskhjóla túr með Spörtu, Ronju, Úlf og Jaka seinnipartin í dag.
Fórum frá Leirutanga 1 að Barðastöðum 1 - þetta voru tæpir 6 km . Allir drógu eins og herforingjar og vorum við afar ánægð með árangurinn.

Thursday, September 9, 2010

Kúskur

Bendum áhugasömum á að nýlega var okkur kennt íslenska orðið "kúskur". Þetta gamla íslenska orð er (loksins!) vel nothæf þýðing á orðinu Musher. Nú kúskum við og stundum kúsk og erum kúskar. Framtíðin verður svo að leiða í ljós hvort orðið verður almennt notað eða hvort heldur sig við óþýdd en stílfærð orð eins og múss.