Tuesday, June 14, 2011

Kópavogur

Fórum nokkur saman tólf kílómetra hring í Kópavogi í gærkvöldi. Ferðin hófst við höfnina. Kjartan Elvar og Baldvin voru á Sacco vagninum, sem dreginn var af Úlfi og Spörtu. Þau voru afskaplega dugleg í þessari ferð, mesta vinnan lenti á þeim. Alexandra var á línuskautum og hafði Aladdin með sér, hann er af tegundinni Saluki. Hún ákvað að hafa hann rólegan, var ekki alveg viss hvort hún myndi standa ef hann tæki á stökkið því hraðinn sem hann nær er töluverður. Jökull var einnig á línuskautum og var með Zizou og Keano sem ákváðu að vera rosa dugleg seinni hluta leiðarinnar. Lóa var dregin af Ronju eins og oft áður. Ronja var mjög dugleg ef Sacco vagninn var á undan, annars var hún pínu einmana. Merkilegt hvað vagninn var oft á undan niður brekkurnar og mátti LBK þá hafa sig alla við. Aníta hetja línuskautaði sjálf alla leið, hafði engan hund til að hjálpa sér. Hún fékk aðstoð niður brekkurnar, þá hélt hún sér í vagninn til að stjórna hraðanum.

Ferðin gekk mjög vel og var fólk sammála um að þetta væri skemmtilegur og hæfilega erfiður hringur fyrir línuskauta fólk. Brekkurnar ekki óviðráðanlegar og ekki of margar. Mælum samt með meira flatlendi fyrir þá sem eru að byrja.

Í morgun fór svo LBK með Úlf og Ronju í canicross. Fórum fimm kílómetra og af þeim skokkuðum við 4,5 km. Hundarnir mættu alveg toga meira, full tillitsamir við hlauparann sem væri alveg til í aðeins meira tog. Best er að hafa millitaum í hálsólarnar þegar skokkað er, það heldur þeim betur við efnið en þegar þau hafa meira svigrúm. Spurning hvort togið yrði meira ef hraðar væri hlaupið. Prófum það við tækifæri.

LBK

Sunday, June 5, 2011

Línuskautar

Í gær fóru Baldvin með Úlf, Lóa með Ronju og Jökull með Zizou og Keano í línuskautaferð í Nauthólsvík. Sara var á hjóli með Jaka og Rökkva. Ferðin sóttist vel og nú þurfti ekki að bíða eftir LBK sem er orðin þokkaleg á línuskautunum með togara og kemst þannig hraðar yfir. Vegalengdin er eins og áður tæplega átta kílómetrar. Þegar haldið er vel áfram og lítið stoppað tekur ferðin um tuttugu mínútur. Zizou og Keno voru ekki alveg í stuði og var JIE því aðeins á eftir en lét hundana hafa fyrir þessu. SRS kvartaði yfir smá athyglisbresti í Jaka og Rökkva. Það breyttist snarlega þegar þeir voru settir með BH og Úlfur fyrir framan hjólið. Hjólið fór á undan og hundarnir settu beint í fluggírinn og drifu sig á eftir. Ronja og Úlfur voru í fullu fjöri alla leiðina. Ronja er reyndar alltaf best ef BH og Úlfur eru fyrir framan. Hún virðist aðeins einmana ef hún fer fremst í flokki.

Nú í kvöld hittust BH, LBK og JIE við Víkingsheimilið. Allir ætluðu á línuskauta. Þá er gott að muna eftir þeim, ekki bara hlífunum og hjálminum. Það hjálpar að hafa þá meðferðis. Það fékk LBK að reyna. Svo hún endaði hundlaus ein með sjálfri sér í göngutúr. Það gerist ekki aftur. BH tók bæði Ronju og Úlf sem voru í stuði eins og stundum áður. JIE var með Zizou og Keano og voru þau öllu viljugri en kvöldið áður. Ferðin sóttist vel og var haldið í Nauthólsvíkina. Þar varð smá óhapp hjá JIE. Steinn festist í einu hjólinu og var ekki hlaupið að því að losa hann. Þau fóru því ekki tilbaka heldur voru sótt á staðinn. Verða tilbúin aftur þegar búið verður að ná steina úr hjólinu.

Þetta er afskaplega skemmtilegt sport fyrir þá sem geta staðið á línuskautum. Fjölbreytni við hreyfingu á fólki og hundum er nauðsynleg.

LBK

Thursday, June 2, 2011

Nauthólsvík

Við skelltum okkur í Nauthólsvíkina seinnipartinn og smelltum á okkur línuskautana. Smá fiðringur í sumum áður en haldið var af stað. Spurning um hversu auðvelt (erfitt) er að standa í lappirnar þegar maður er dregin áfram af viljugum og þrautþjálfuðum dráttarhundum. Allir voru spenntir og voru teymin þannig skipuð: Karkur dró Rósu á hjóli, Jaki dró Tedda á hjóli, Baldvin var dreginn á línuskautum af Úlfi og Zizou, Jökull var einnig á línuskautum og var dreginn af Keano og Ronju, Olga var með Rökkvu og Hrímu fyrir framan sig, Sara var dregin af Rökkva en ákvað fljótlega á leiðinni að fá Jaka með honum í lið. Lóa ákvað að nota eigið fótaafl í upphafi ferðar en tók með sér taum til að eiga möguleika á aðstoð.

Allir fóru sem leið lá að Ægissíðu, hver á sínum hraða. BH og ORB stungu alla af, enda með ansi viljuga hunda sér til aðstoðar. Þeirra helsta verkefni var að lifa af og standa á línuskautunum þrátt fyrir þó nokkurn hraða. Ronja var ekki alveg í stuði fyrir að láta stinga sig af og því var Jökull fljótur að ná þeim. Er komið var á Ægissíðuna þar sem við snúum venjulega við, var beðið eftir LBK sem rak lestina.

Þegar haldið var tilbaka að Nauthólsvík ákvað LBK að fá Ronju sér til aðstoðar. BH tók þá Keano og Jökull fékk Zizou. Leiðin tilbaka gekk glimrandi vel og allir hundar í góðum gír. LBK alsæl með að ná smá öryggi með hundinn fyrir framan sig en rak samt lestina einnig í þetta sinn. Ferðalagið var 7,3 km og tók okkur klukkustund.

Allir alsælir með líkamsrækt dagsins og geta ekki beðið eftir að komast á línuskautana aftur og fá aðstoð ferfætlingana til að komast hraðar yfir.

LBK