Friday, July 30, 2010

Úrslit dráttarkeppni spitzhundadeildar HRFÍ við Eldborg 2010

Hlaupnir voru 2x500 metrar á malarvegi, fram og til baka án hlés. Alls 1km á hlaupahjóli. Hvert lið samanstóð af einum ekli og tveimur hundum.

1. Hulduheims (Hulda með Skjöld og Lizzy) 2:21
2. Team Elbresos (Kári með Bresta og Tind) 2:43
3. Linda með Frosta og Nölu 3:03
4. Siberian Express (Baldvin með Ronju og Úlf) 3:27
5. Þorkell með Val og Lizzy 3:32
6. Auður með Ljúf (amerískur cocker spaniel) og Storm 4:02
7. Tara með Demi (malamute) og Minnie 4:59
8. Stefán með Mayu og Öglu 5:13
9. Róbert með Frosta og Mayu 5:20

Wednesday, July 28, 2010

Ægisíða að Nauthólsvík

Tókum 10km létt skokk eftir Ægisíðunni að Nauthólsvík og til baka með Úlf, Ronju, Keano og Zizou. Þetta svæði hentar okkur ágætlega því það er svo slétt. Svo var veðrið ekki að spilla fyrir. Róleg gola og 17 stiga hiti þegar lagt var af stað.

Þetta tók 1 klst og 2 mínútur, 10.6km og ágætis gangur á þeim alla leiðina. Höfum ekki vanið okkur á að gefa þeim að drekka í þessum túrum. Á ekki að þurfa og svo fá þau eins og þau vilja af vatni eftir á.

Malbikið fer ekki vel í þófana svo það er ástæða til að reyna að láta þau nota grasið í kanntinum... allavega annað slagið.

Sunday, July 25, 2010

Dráttarkeppni Spitzhundadeildar HRFÍ við Eldborg

Tókum þátt í dráttarkeppni spitzhundadeildar HRFÍ í dag. Níu lið kepptu, tveir hundar og ekill á hlaupahjóli í hverju liði. Farin var 2x500 metra sprettur eftir malarvegi með 180° snúning eftir fyrstu 500 metrana. Ronja, Úlfur og Baldvin lentu í fjórða sæti. Ásættanlegur árangur miðað við að Ronja tók eitt salernishlé á leiðinni. Báðir hundarnir hlupu mjög vel og þetta lofar góðu fyrir næstu keppni!

Sunday, July 18, 2010

IceHusky 2010

Mættum á föstudegi og flestir voru alla helgina og tíndust af svæðinu upp úr 14:00 á sunnudegi. Það var keppt í hjóladrætti (tveir hundar í liði), innkalli og dekkjadrætti með smá hlaupi og beislisásetningu... auk búningakeppninnar og fleira svona tilfallandi.

Siberian Express náði 4., 5., 7. og 8. sæti af 10 í hjólakeppninni með Ronju, Úlf, Spörtu, Jaka, Zizou og Keano blönduð á nokkra vegu. Alveg þokkalega sátt við það en greinilega að einhverju að stefna! Sara grillaði svo innkallskeppnina með Jaka seinna um daginn.

Frábær félagskapur og mikið fjör. Hundunum fannst reyndar aðeins of heitt þegar hitinn var sem mestur en eigendurnir höfðu yfir engu að kvarta og komu kaffibrúnir heim.

Thursday, July 15, 2010

8,5km kringum Elliðavatn

Náðum 2x2 hunda teymum og tveimur stökum hundum á hjól og fórum hringinn í kringum Elliðavatn. 8,5km á 45 mínútum. Sléttur og tiltölulega láréttur malarvegur mest alla leið. Hópurinn er að virka ágætlega saman og engar slæmar uppákomur. Verður spennandi að sjá hvernig dagsformið verður á laugardaginn uppi í Kjós.

Wednesday, July 14, 2010

Æfingar fyrir IceHusky mótið

Fórum í kvöld með 6 hunda í tveggja hunda teymum á þremur hjólum. Ronja, Úlfur, Sparta, Jaki, Zizou og Keano. Rúnturinn var nokkrir kílómetrar með erfiðri brekku upp í móti um miðbikið en þau stóðu sig öll með prýði. Höldum áfram að byggja upp á morgun með túr í kringum Elliðavatn.

Monday, July 12, 2010

Ronja stungin af geitungi

Ronja var stungin af geitungi í andlitið kl. 20:00 9. júlí. Bólgnaði þannig í andlitinu að hún varð alveg tvöföld. Hrikalegt að sjá. Hefur gerst einusinni áður. Þá var hún sprautuð niður en núna ákváðum við í samráði við dýralækni að láta þetta líða hjá. Hún var með kalda baxtra og í stjani allt kvöldið og fylgst með henni um nóttina en daginn eftir hafði lítið breyst. Um kvöldið þann 10. var staðan þannig að það þótti rétt að fara með hana til dýralæknis. Gunnar í Borgarnesi sprautaði hana fyrir okkur með bólgueyðandi og sýklalyfi og fljótlega eftir að fór hún að skána og var orðin góð að morgni þess 12. og eiginlega alveg búin að hjaðna um kvöldið.

Friday, July 9, 2010

Miðnæturhjólatúr

BH, ABE, Ronja, Úlfur og afmælisbarnið Sparta (eins árs í dag!) tóku stuttan miðnæturhjólatúr frá Leirutanga 1. Það var frábært að fylgjast með því hvað hundarnir tóku vel á því í kvöldsvalanum. Hlupu nær sleitulaust rúma þrjá kílómetra. Góður sprettur og svo leyfðum við þeim að kæla sig niður og ná hjartslættinum í ró líka fyrir nóttina. Greinilega eitthvað sem verður endurtekið, miðað við hvað þetta kom vel út.

Saturday, July 3, 2010

Keilir

VMB, BH, Úlfur og Ronja gengu á Keili (379m) í frábæru veðri. Hundarnir máttu hafa svolítið fyrir þessu í hitanum en fóru samt létt með að aðstoða okkur upp á topp. Skildum eftir 30% af Úlfi á toppnum eftir að búið var að renna kambinum í gegnum feldinn hans nokkrum sinnum.