Saturday, March 1, 2014

Mývatn 2014

Fólk og hundar hafa verið dugleg að undirbúa sig fyrir Mývatn í ár. Hundarnir hafa verið duglegir að drífa fólkið sitt upp í Bláfjöll til að æfa sig saman. Bæði á sleða og á gönguskíðum. Það hefur gengið svona ljómandi vel og allir sprækir.

En það er ekki nóg að koma og vera sprettharður með gott úthald. Það er nauðsynlegt að ná sér í nýjan íþróttabúning fyrir keppni. Grundvallaratriðið að hafa lúkkið og kúlið á hreinu líka :)

Þá er bara að setjast við saumavélarnar og græja beisli á þrekhundana okkar !





Þegar mátulega langt er síðan saumað var síðast, þá eru hversdagsbeislin orðin snjáð og notuð. Þá er sérstaklega skemmtilegt að sjá útkomuna eftir saumakvöld






Hundarnir taka sig verulega vel út í þessum beislum. Þau eru í tískunni þessar elskur - Neon skal það vera í ár.

Það var svo lagt í´ann í gær, föstudagurinn tekinn í að keyra norður. Hundarnir pökkuðu létt - ekki mikill farangur þau eru nægjusöm þessar elskur.


Passa að ekkert gleymist til að vera vel vopnaður á staðnum. Svo bara bruna af stað úr vorinu með góða skapið (keppnisskapið) og bjartsýnina.


Keyrt inn í vetraríkið fyrir norðan og kúrt inni í góðu yfirlæti fyrir átök helgarinnar. Fátt meira kósý en að hlaða batteríin í góðum félagasskap, með fullt af snjó og svo myrkri fyrir utan.



Fyrri keppnisdagurinn gekk svona líka glimrandi vel. Fólk sópaði til sín verðlaunum í öllum flokkum sem við tókum þátt í. Og hér má sjá afraksturinn eftir daginn.



Olga tók 1. sæti í 5 km sleða með fjóra hunda
Orri tók 2. sæti í 5 km sleða með tvo hunda
Auður tók 1. sæti í 5 km á gönguskíðum með tvo hunda (kvennaflokkur)
Olga tók 2. sæti í 5 km á gönguskíðum með tvo hunda (kvennaflokkur)
Halli tók 3. sæti í 5 km á gönguskíðum með tvo hunda (karlaflokkur)

Fólk og hundar alsæl með góðan dag með skemmtilegu fólki og hundum. En nú hvílir fólk fyrir morgundaginn og ætlar að gera jafnvel á morgun... af því þetta er keppnis ;)

LBK