Við tókum þátt í skemmtilegum fundi um sleðahunda og hundasleða að Barðastöðum 1 þar sem nálægt 30 einstaklingar ræddu ýmis mál tengd sportinu. Fyrst var rætt um fyrirhugaða sleðahundakennslu með Ararat snemma næsta vor eða síðla vetrar. Þá var farið yfir hugsanlega stofnun sleðahundaklúbbs sem hefði það að markmiði að efla sportið og hugsanlega standa fyrir uppákomum tengdum því. Að lokum voru lagðar fram hugmyndir um sameiginlega smíði á hundasleðum í vetur. Það er óhætt að segja að fólk hafði mikinn áhuga á því sem um var rætt og komu fram mjög fjölbreytt og áhugaverð sjónarmið í tengslum við fundarefni.
Nokkrir einstaklingar í hópnum tóku að sér að hafa veg og vanda að undirbúningi fyrir námskeið í mars 2011.
Unnið er að því að skoða hvernig best er að standa að stofnun sleðahundafélags á Íslandi, hugsanlega fyrir áramótin 2010-2011.
Líklegt er að farið verði í smíði um eða yfir tíu hundasleða á næstu vikum og mánuðum.
Við hlökkum til að fylgja þessum málum eftir og sjá sleðahundasportið taka enn hærra flug á komandi vetri.
Sunday, August 29, 2010
Safnað í reynslubankann á sunnudags morgni
Fórum í dag og drógum vagn með sex hunda spennta fyrir í einu. Upphaflega lagt af stað í verkefnið til að brjóta upp daginn hjá veikum börnum en enduðum á því að auglýsa uppi í Reiðhöll þar sem hundasýning stóð yfir. Frábærir hundar og skemmtilegir krakkar skemmtu sér saman frá 10:00 til 12:00. Hundarnir höguðu sér að mestu afar prúðlega og við fengum öll skemmtilega æfingu út úr þessu. Klárlega eitthvað sem verður endurtekið. Það þarf að vinna meira með þau svona í hópum til að fá meiri togkraft í einu!
Tuesday, August 17, 2010
Æfðum að draga vagn með sex hunda í einu
Kári er með skemmtilegan vagn sem allt að þrír geta setið í og hentar vel að láta sex hunda draga í einu. Til stendur að draga krabbameinssjúk börn stutta vegalengd fljótlega til að gleðja þau og stytta þeim stundir. Við tókum þátt í æfingum fyrir þennan viðburð í kvöld í frábæru verði með enn betra fólki.
Prófuðum nokkrar samsetningar af hundum og tókum marga hringi á bílastæðinu við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Ágætis aðstaða þó það sé e.t.v. skemmtilegra að taka lengri spretti í einu ef maður er að þessu til að skemmta sjálfum sér. En aðstæður þarna sjálfsagt svipaðar því sem verður þegar ekið verður með börnin. Hlökkum til næstu æfingar og búumst við því að þetta batni eftir því sem við prófum okkur meira áfram.
Prófuðum nokkrar samsetningar af hundum og tókum marga hringi á bílastæðinu við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Ágætis aðstaða þó það sé e.t.v. skemmtilegra að taka lengri spretti í einu ef maður er að þessu til að skemmta sjálfum sér. En aðstæður þarna sjálfsagt svipaðar því sem verður þegar ekið verður með börnin. Hlökkum til næstu æfingar og búumst við því að þetta batni eftir því sem við prófum okkur meira áfram.
Subscribe to:
Posts (Atom)