Snjórinn eitthvað að hörfa. Látum það ekki á okkur fá. Notuðum helgina í gönguferðir. Fórum á laugardaginn og gengum við Undirhlíðar í Hafnarfirði. Þar fengu hundarnir að hlaupa lausir, alsælir með það auðvitað. Vorum þarna seinnipartinn og það rifjaðist fljótt upp fyrir okkur að gott er að hafa ljós í hálsólum hundana. Fleiri en Olga muna það sennilega næst. Vill til að hundarnir sjá vel og rata alveg. Svo allir komu þeir aftur og vel sprækir. Þau eru afskaplega dugleg að halda hópinn svo við höfðum ekki miklar áhyggjur af þeim. Það var bara erfitt að telja hópinn þegar það var reynt á leiðinni tilbaka.
Fórum svo nokkur aftur í dag, sunnudag, í hádeginu. Stefnan tekin á Hvaleyrarvatn þar sem Sleðahundaklúbburinn var með hitting. Fór þannig að bara meðlimir Siberian Express mættu, gripu Foldu og Funa með í gönguna, voru þarna á sama tíma fyrir tilviljun. Okkur finnst sérstaklega gaman að hafa yngsta kúsk landsins með í för og hún heiðraði okkur með nærveru sinni í dag. Lillý kom og kúrði framan á pabba sínum. Stóð sig samt prýðilega í að kúska hópinn áfram þegar fólk stoppaði aðeins og athugaði með ruslafötu hjá skátaskálanum.
Þar sem við vorum fá og með hunda sem allir þekkjast var ákveðið að hleypa þeim lausum. Það gekk eins og í sögu og fengu þeir góða útrás.
Mýsnar á saumstofunni hafa haft nóg að gera. Mjög gaman að sjá hugmyndavinnu verða að veruleika. Allt að gerast og við erum mjög ánægð með súper flottu framleiðsluna. Getum ekki beðið eftir að gera meira.
LBK