Saumavélarnar voru settar upp á borð í gærkvöldi. Haldið var áfram þar sem frá var horfið síðast. Það hefur ýmislegt gerst síðan við byrjuðum að sauma sjálf. Nokkrir komnir með D-beisli. Þau eru verulega svöl og eigendur þeirra sáttir við útkomuna. Keano og Zizou komin með D-beisli í fyrsta sinn og þau taka sig vel út með þau. Keono með blátt og Zizou með svart. Leo var búinn að fá eitt appelsínugult til að vera í stíl við hina villingana á hans heimili. Einnig höfum við saumar D-beisli í fánalitunum. Kepptum með þau á Þingvöllum í haust og með tauma í fánalitunum í stíl. Kom mjög vel út :)
Ekki má gleyma að Rebbi (íslenskur/border collie) fékk svart D-beisli. Hann er sérstaklega kátur með það og stefnir ótrauður á verða topp sleðahundur.
Í gær var loksins lokið við vinnuna á mittisbeisli fyrir kúskinn. Okkur hlakkar mikið til að prófa það og finna hvernig það virkar. En við vitum nú þegar að það lítur afskaplega vel út og við erum ánægð með hönnunina á því. Prófunin verður einföld. Kúskur setur mittisbeltið á sig og tengir í það taum, í tauminn verða svo Úlfur og Leo spenntir. Eftir smá göngutúr með þá félaga fyrir framan ætti að vera ljóst hvort mittisbeltið þoli álagið og hvort bakið á kúsknum verði í lagi á eftir.
Í gær var lokið við að sauma eitt X-beisli fyrir tík. En búið er að undirbúa þrjú önnur sem á eftir að sauma saman. Einnig er búið að gera undirvinnuna fyrir fjögur X-beisli fyrir rakka, bara eftir að sauma þau saman. Það var því ákveðið að hittast aftur í kvöld til að sauma meira. Það er betra að hamra járnið á meðan það er heitt og sérstaklega þegar maður man svona u.þ.b. hvernig best er að gera hlutina. Erfitt þegar alltaf þarf að hugsa "hvernig var best að vinna þetta verk?"
Þetta gengur hratt og vel því allir hjálpast að. Olga og Lóa hafa saumað, Baldvin hefur mikið séð um hönnun og hugmyndavinnu, Jökull, Kristín, Rósa og Orri hafa verið öflug í að sníða og títiprjóna. En svo eru allir í öllu þess á milli. Nema Lillý, hún hefur helst séð um verkstjórn og passað að allir hafi nóg að gera.
LBK
Friday, February 24, 2012
Wednesday, February 22, 2012
Það er gott að hjóla í Kópavogi
Eftir matinn í gær hittumst við í Kópavoginum og tókum hjólatúr með hundana hefðbundinn hring, u.þ.b. 12 km. Hundarnir mættu allir og pöruðu sig tveir og tveir á hjól. Orri var með Keano og Kark. Karkur rólegur eftir góða spretti fyrr um daginn í lausagöngu og Keano var sáttur við að taka hringinn svona á tempói, rólegu tempói. Olga fékk aðstoð Hrímu og Ronju og stóðu þær sig nokkuð vel en róuðust aðeins seinni helming leiðarinnar. Lóa var á keðjulausu lestinni og byrjaði með Zizou og Leo. Þau voru nokkuð spræk í upphafi en Leo þurfti aðeins að beita sannfæringarkrafti á Zizou og dró hana eiginlega ásamt því að draga hjólið. Baldvin byrjaði með aðstoð Úlfs og Rökkvu. Þau eru alltaf spræk og stungu hina af nokkuð sannfærandi.
Um miðja vegu biðu Baldvin og Olga eftir Lóu og Orra til að taka stöðuna á öllum. Lóa og Baldvin ákváðu að skipta um teymi því Leo var í raun einn um að draga keðjulausa hjólið og Zizou. Lóa var þannig send af stað með Rökkvu og Úlf sér til aðstoðar. Ekki lengi að láta sig hverfa og hélt forystunni allan tímann. ipod í eyrun og svona dráttarvélar fyrir framan hjólið getur ekki klikkað. Eina sem vantaði kannski var svona mótórhjólahjálmur. Þannig að hægt væri að draga hlíf fyrir andlitið. Krafturinn var slíkur hjá Rökkvu sérstaklega að drullan af göngustígum spíttist í andlitið á þeim sem sat á hjólinu.
Ferðin gekk vel hjá öllum, mishratt þó. Lóa var komin, ásamt Rökkvu og Úlfi, á áfangastað góðum tíu mínútum á undan Baldvini með Zizou og Leo. Fimm mínútum seinna komu svo Orri og Olga með Kark, Keano, Ronju og Hrímu.
Við erum að komast í gírinn og orðin góð í að muna eftir hjálmum, ljósum og endurskinsvestum á menn og hunda. Hundarnir verða komnir í gott (betra) form mjög fljótlega.

Friday, February 17, 2012
Það snjóar bara og snjóar...
Vetur konungur ríkir enn, þrátt fyrir að margir hafi verið byrjaðir að tala um vorveður. Það er bara febrúar ennþá gleymum því ekki.
Í gær var æfing með hundunum. Þegar enn var vor í lofti var ákveðið að hjóla Kópavogshringinn. Létum ekkert á okkur fá að það hafði kólnað aðeins í millitíðinni og líka snjóað. Vorum nokkuð viss um að með kvöldinu myndi snjórinn vera horfinn af stígum og héldum okkur því við plan A, þ.e. hjólin. Klukkan 18:30 kyngdi niður snjó eins og í góðri Disney jólamynd. Héldum okkur engu að síður við plan A. En tókum samt Sacco vagninn ásamt hjólunum í þetta sinn. Rósa og Orri stjórnuðu honum með fjóra hunda saman fyrir framan. það voru þau Zizou og Karkur í grindunum en Keano og Rökkva í taumi fyrir framan. Baldvin hjólaði sjálfur án áðstoðar ferfætlinga. Lóa var á keðjulausu lestinni með Leo og Úlf sér til hjálpar. Karlotta hjólaði með góðri aðstoð Hrímu og Ronju.
Kópavogshringurinn er um 12-13 km og gekk ferðin mjög vel hjá öllum. Allir hundar í góðu stuði, hlýtur að vera snjórinn sem hefur þessi áhrif. Lóa fór fremst í flokki með rakkana tvo. Henni fannst það skemmtileg tilbreyting því venjulega rekur hún lestina með Ronju sinni. Þeir voru mjög öflugir og duglegir, með smá þefpælingum og pissustoppum einstaka sinnum. Það getur verið ansi pirrandi og nauðsynlegt að ná svona vitleysu úr þeim þegar þeir eru í vinnunni. Karlotta og tíkurnar gáfu ekkert eftir og héldu allan tímann í við rakkana. Mjög gott að hleypa þeim framúr í brekkunum, þar sem Karlotta gat hjólað með, þá fóru rakkarnir létt með að draga keðjulausa hjólið upp. Annars eiga þeir það til að hlífa sér upp í móti.
Hundarnir sem drógu sacco vagninn voru sprækir og drógu vel allan tímann. Baldvin hjólaði með þeim en þau náðu ekki hjólunum tveimur sem voru á undan. En ferðin sóttist jafnt og þétt og hvergi var slegið af.
Smá hálkuslys setti strik í reikninginn. Karlotta rann á hjólinu og datt á öxlina á Markaveginum. Þurftum að hjóla út á götuna og þar var meiri hálka en á gangstéttinni sem var á kafi í snjó. Vorum að taka tillit til gangandi vegfaranda. Handleggurinn lemstraður og hún var því látin setjast í sacco vagninn og stjórna honum. Það var vel hægt því hægri handleggurinn stjórnar bremsunni, hann var í lagi og svo stjórnar maður beygjum með fótunum. Þetta fór því ágætlega og við gátum klárað hringinn, en styttum hann aðeins í þetta sinn.
Vorum spriklandi ánægð með hvað hundarnir voru duglegir. Þau fengu öll verðlaunin sín, pylsubita, að launum fyrir vel unnin störf.
Karlotta fór á slysó til að vera viss um að það væri í lagi með handleginn. Hún gat ekkert lyft honum og var verulega illt í öxlinni. Læknirinn sagði að þetta væri óbrotið allt saman, mikill léttir þar. Svo nú er daman í fatla til að hvíla öxlina og handlegginn. En fékk jafnframt fyrirskipun um að vera dugleg að hreyfa hendina til að stífna ekki upp.
Nú hlakkar okkur til að fara aftur af stað fljótlega og sjá hvort hundarnir verði í banastuði þá líka, við gerum auðvitað ráð fyrir því.

Wednesday, February 15, 2012
Tími til kominn
Keppni á Mývatni framundan og það er að renna upp fyrir okkur að tíminn er fljótur að líða. Þess vegna brýndi Kristín röddina og skipaði fólki að hefja æfingar. Það er ekki langur tími til stefnu og var fyrsta formlega æfingin í gær. En Kristín hins vegar mætti ekki... sendi bara hundana á staðinn með þeirri tilskipun að það ætti að láta þau hlaupa og gefa svo skýrslu í lok æfingar. Að sjálfsögðu var það gert.
Við ákváðum að stokka þetta aðeins upp. Allir voru á hjólum, það viðrar svo vel til að hjóla. Þurfum aðeins að vinna betur í því að vera alltaf rétt útbúin og tímanlega á staðinn :) T.d. voru ekki allir hundar í endurskinsvestum, það ætti að vera innbyggt í okkur mannfólkið að sjá til þess að svo sé. Einnig ættum við sjálf öll að vera í endurskinsvestum og með hjálma. Því var aðeins ábótavant en stendur til bóta. Höfuðljós eða ljós á hjólið ætti einnig að vera staðalbúnaður og á ekki að gleymast. Á næstu æfingu verða þessi atriði í lagi hjá okkur.
Á þessa fyrstu æfingu mættu átta hundar og fimm manneskjur. Olga hjólaði með Hrímu og Úlf, Baldvin var með Leo og Keano á keðjulausu hjóli, Karkur og Rökkva drógu Orra en Ronja og Zizou drógu Lóu. Rósa ákvað að hjóla sjálf og "héraði" ef á þurfti að halda, smá hvatning virkar stundum ágætlega. Allir hundarnir stóðu sig prýðilega. Við erum þó öllu nær um hverju þarf að vinna betur í og þjálfa fyrir komandi keppni. Við sem ekki ætlum að kúska liðið á Mývatni erum mest spennt fyrir að koma kúskunum í keppnisform. Það eru nefnilega ekki aðeins hundarnir sem þurfa að byggja upp þol og keppnisanda, heldur þarf sá sem stýrir teyminu og stendur á sleðanum að vera í góðu líkamlegu formi líka.
Það mæltist vel fyrir að stokka hundunum svona upp og sjá hvernig þau vinna með öðrum en þau eru vön. Fólk sammála um að halda því áfram. Næsta æfing verður fljótlega, það þarf að hreyfa hundana daglega og því ætti ekki að vera mikið mál að nota hreyfingu dagsins í uppbyggilega þjálfun fyrir Mývatn í mars.

Sýna sig og sjá aðra
Galvösk mættum við nokkur á sunnudaginn var á hitting hjá Sleðahundaklúbbnum. Mæting var góð og gaman að sjá hversu margir voru mættir með hjólin nú þegar snjórinn er farinn... í bili. Siberian Express fólk mætti með Sacco vagninn, um að gera að nota hann þegar svo viðrar. Orri settist í vagninn en Baldvin stóð aftan á og hljóp með þegar á þurfti að halda. Fjórir hundar voru fengnir til að draga þá félaga. Leo og Úlfur voru í grindunum en Hríma og Rökkva hlupu fyrir framan þá í taumi. Þetta gekk ágætlega. Kristín hjólaði með Keano, en Zizou aðstoðaði Kark við að draga hjólið hennar Rósu.
Mikill spenningur var í hundunum að leggja af stað, smá röfl og spangól. Ákveðið var að drífa þá af stað sem voru tilbúnir. Það gekk vel þannig að fljótlega þagnaði kórinn á Olís við Ánanaust. Hundarnir sáttir við að fá að hlaupa. Eftir stóðu Ronja og Lóa... og keðjulausa lestarhjólið - ekki svo góð blanda. Ronja pollróleg yfir þessum látum öllum saman og sennilega glotti hún aðeins þegar Lóa ákvað að láta á það reyna að setjast á hjólið með hana í taumnum fyrir framan. Á sekúndubroti var manneskjunni ljóst að þetta myndi ekki ganga vel. Hún yrði að "hlaupa" þetta sjálf á hjólinu ef þetta teymi ætti að komast eitthvað áfram. Þannig að skipt var allsnarlega um gír, stigið af hjólinu og tíkurnar tvær, Lóa og Ronja, tóku létta göngu meðfram sjónum að höfninni og skoðuðu skipin sem þar lágu og lífið í kring. Báðar sæmilega sáttar, þessi fjórfætta þó sennilega mun sáttari en þessi með tvo fætur.
Ákveðið var að fara að vitanum og svo aftur tilbaka að bensínstöðinni. Það leggst misvel í hundana, Zizou t.d. sá ekki tilganginn með því að fara sömu leið tilbaka. Varð frekar löt og Karkur hafði sennilega meira fyrir því að draga hana en hjólið. Það virkar alltaf best að fara hring þegar verið er að hreyfa þau. En þau stóðu sig vel og mannfólkið þurfti ekki að hafa of mikið fyrir þessari ferð. Viss um að Ronja hafi sagt loðnu vinum sínum sögur af fuglunum við sjóinn, fiskikörum sem því miður, fannst henni, voru tóm.
Okkur hlakkar til að hitta allt þetta skemmtilega fólk að tveimur vikum liðnum, erum sannfærð um jafngóða, ef ekki betri, mætingu.

Subscribe to:
Posts (Atom)