Thursday, September 27, 2012

Þingvellir 22. september 2012

Þingvellir eru meðal fallegustu staða landsins. Á haustin er yndislegt að njóta litadýrðarinnar á staðnum. Það voru hressir liðsmenn og hundar sem skunduðu á Þingvelli þann 22. september í úrhellisrigningu. Við vorum mætt rétt fyrir klukkan níu við Þjónustumiðstöðina þar sem við hittum aðra keppendur og tengda aðila. Tilefnið var Íslandsmeistaramót Sleðahundaklúbbs Íslands. Siberian Express átti keppendur í öllum flokkum nema unglingaflokkum. Við bætum kannski úr því í framtíðinni, aldrei að vita, því það eru ansi öflugir og hressir krakkar á heimilum Siberian Express hundanna. Og þau gefa foreldrum sínum lítið eftir í umhirðu og þjálfun ferfætlinganna.

Er komið var á keppnisstað, klukkan tæplega 10, gerðu keppendur í bikejöring og scooter flokki sig tilbúna. Þrír liðsmenn Siberian Express og hundar þeirra voru tilbúnir þrátt fyrir úrhelli. Í bikejöring kepptu þrjú lið. Fyrir okkar hönd kepptu Teddi og Rökkvi, sem ræstu fyrstir, ásamt Olgu og Rökkvu sem ræstu á eftir þeim félögum. Í Scooter (eða keðjulaus hjól) flokki voru einnig þrjú lið. Fyrir okkar hönd keppti Lóa Björk á scooter sem Úlfur og Leo drógu. Þess ber að geta að scooter-inn var fenginn að láni hjá Sigga og Claire, sem við köllum Grænlendingana. Þau reka Dogsledding Iceland þar sem grænlenskir sleðahundar sjá um skemmtunina. LBK ræsti síðust á eftir tveimur "grænlenskum" liðum sem Kelvin og Barratt stýrðu.

Siberian Express hundarnir voru allir í sokkum því brautin er gróf á köflum og þeir taka vel á því. Það kom nokkuð á óvart að vegurinn var eins og þvottabretti þar sem ekki var malbik og máttu keppendur hafa sig alla við þegar hraðinn á hundunum var sem mestur, eða um 30 km á klst.

Þrátt fyrir stanslausa rigningu gekk ferð keppenda vel og allir komust í mark heilir, og sælir, eftir góða ferð. Það má láta það fylgja að sokkar hundanna voru tættir og ónýtir eftir ferðina, höfðu gert sitt gagn. Þegar allir keppendur höfðu komist yfir marklínuna var haldið aftur að Þjónustumiðstöðinni því verðlaunaafhending var ekki fyrirhuguð fyrr en að keppt hafði verið í öllum flokkum. ORB og LBK voru báðar skráðar í canicross og notuðu því tímann til að skipta yfir í hrein, þurr (ósveitt) föt. Og allir fengu sér að borða til að hafa nóga orku í canicross eftir hádegið.

Klukkan 13 var svo ræst í 10 km canicross karla og kvenna. Þrír keppendur voru skráðir í karlaflokki en aðeins tveir í kvennaflokki. Halli hafði skráð sig til leiks en forfallaðist þannig að Baldvin tók hans stað fyrir liðið. BH hljóp með Úlfi í karlaflokki en Olga hljóp með Rökkvu í 10 km kvennaflokki. Rúmum hálftíma seinna var ræst í 5 km canicross bæði karla og kvenna. Fjórir voru skráðir í karlaflokk en þrír í kvennaflokk. Orri hljóp með Karki en Lóa hljóp með Ronju 5 km. Allir hundar Siberian Express voru í sokkum í hlaupinu. Sokkarnir voru ekki illa farnir eftir hlaupið, enda spyrna hundarnir ekki eins mikið í á hlaupum í canicross líkt og bikejöring.

Þegar allir keppendur höfðu hlaupið, sveittir, þreyttir og alsælir, yfir marklínuna var enn og aftur keyrt að Þjónustumiðstöðinni þar sem slegið var upp grillveislu í boði stjórnar klúbbsins. Þar stóð Gulli grillmeistari sig afskaplega vel í að gera öllum til hæfis með akkúrat rétt grilluðum pylsum fyrir hvern og einn. Verðlaunaafhendingin fór fram í þessari veislu og voru liðsmenn, og hundar, Siberian Express verulega ánægðir með árangur dagsins. Í þeim sex flokkum sem við kepptum í tókum við fimm gull og tvö silfur.

Bikjöring:
1. sæti - Olga Rannveig með Rökkvu
2. sæti - Theodór Heiðar með Rökkva

Scooter (eða keðjulaust hjól):
1. sæti - Lóa Björk

Canicross 10 km karla:
1. sæti - Baldvin

Canicross 10 km kvenna:
1. sæti - Olga Rannveig

Canicross 5 km karla:
1. sæti - Orri Kristinn

Canicrosss 5 km kvenna:
2. sæti - Lóa Björk

Mótið gekk vel og voru allir glaðir með sitt. Þrátt fyrir mikla rigningu og blautt veður var mannfólkið í liðinu vel haldið og þurrt í góðum fatnaði frá 66°N og Under Armour.

Nánari úrslit og tíma má sjá á vef klúbbsins http://sledahundar.is/urslit. Þar má einnig sjá mynd á forsíðunni af öllum keppendum mótsins.

Við þökkum öll innilega fyrir skemmtilegan dag og góða keppni. Við hlökkum til að taka þátt fljótlega aftur og hitta skemmtilegt fólk og hunda á góðum degi.

LBK

Friday, September 21, 2012

Íslandsmeistarakeppni SHKÍ á Þingvöllum 2012

Siberian Express keppir í Íslandsmeistaramóti SHKÍ á Þingvöllum á morgun, laugardag. Það stefnir í skemmtilega keppni. Við eigum þátttakendur í öllum flokkum og bæði hundar og menn eru klár í slaginn. Hlökkum til að hitta ykkur og mótherjana sem keppa með okkur og búumst við góðum degi.