Friday, December 30, 2011

Ævintýri

Fórum "Iron will" í kvöld. Heiðmörkin í snjónum og myrkrinum. Olga leiddi hópinn með tíkurnar sínar tvær. Þær báðar að lóða svo það var viðbúið að rakkarnir sem á eftir komu væru sprækir. Fórum hluta leiðarinnar eftir veginum í hjólförum. Olga hafði aðeins fyrir því þarna uppeftir. Lóa kom á eftir henni með sín þrjú, hafði ekkert fyrir þessu, nema þá helst að halda sér á sleðanum. Rakkarnir flugur áfram í veikri von um komast í návígi við tilkippilegar tíkur. Siggi og Rósa komu svo á eftir með sín þrjú. Funi og Karkur unnu saman í fyrsta sinn og það gekk vel um leið og þeir fóru að vinna og drógu sleðann.

Fórum svo inn á göngustíginn þar sem við erum vön að hefja ferðina. Færðin var verulega þung en gekk þokkalega. Olga hleypti Lóu framúr til að fá smá hvatningu fyrir sína hunda. Það er erfitt að vera fremstur alla leið. Þegar við komum að bílastæðinu þarna neðar beið aðstoðarfólkið á hliðarlínunni eftir hópnum. Rósa hélt áfram ein með sitt teymi þaðan og Siggi varð eftir. Það gekk töluvert mikið betur eftir að búið var að létta sleðann.

Færðin var skuggalega þung víðast hvar og ef kúskurinn ætlaði að hjálpa til og ýta eða hlaupa með mátti hann oft hafa sig allann við að komast aftur á sleðann. Var bara að halda aftur af hundunum. Því hann endaði upp að hnjám í snjó og tafði þau bara.

Ferðin reyndi þokkalega á bæði hunda og menn. En bæði hundar og menn fóru létt með þetta engu að síður og skemmtu sér vel. Ferðin gekk vel og verður klárlega endurtekin á morgun.

LBK

Monday, December 12, 2011

Aðventan

Fórum í gær nokkur saman í Heiðmörk með tvo sleða og sjö hunda. Olga og Jökull fengu að spreyta sig á "Iron will" leiðinni. Olga var með Hrímu, Rökkvu og Úlf framan á sleðanum sínum. Zizou, Keano, Ronja og Karkur drógu sleðann hans Jökuls. Þau skemmtu sér mjög vel og hundarnir voru öflugir allann tímann. Þau fóru að Vífilstaðavatni og í kringum það. Þá var ákveðið að láta gott heita á meðan hundarnir voru enn viljugir og sprækir.

Það eru allir sammála um að þessi leið sé skemmtileg og krefjandi. Okkur langar að finna fleiri staði sem eru líkir þessu umhverfi.

Það er nauðsynlegt að líta upp úr bókum í prófatörn og enn nauðsynlegra að fagna próflokum. Þannig að Jökull var alsæll að komast út og þurfa ekki að hugsa um lokapróf aftur fyrr en í maí. En Olga fékk örugglega aukna orku til að setjast aftur yfir bækurnar til að klára eina prófið sem eftir er hjá henni!

Öll erum við sammála um að það sé ekki til betri leið til að njóta aðventunnar en að vera úti að leika okkur  í þessu fallega veðri sem hefur verið undanfarnar vikur.  Rétt að rifja það upp hérna að við hættum ekki að leika okkur þegar við verðum gömul. Við verðum gömul þegar við hættum að leika okkur.

LBK

Monday, December 5, 2011

Á sleða skemmti ég mér tra la la la...

Við hittumst nokkur ásamt félögum úr Sleðahundaklúbbnum í Heiðmörk í gær. Frábært veður, skemmtilegt fólk og hraustir hundar. Allir hjálpuðust að við að koma hundum fyrir framan sleðana. Allir með fjóra til fimm hunda. Það er alltaf skemmtilegt að fylgjast með spenningnum sem myndast hjá hundunum á meðan þeir bíða eftir því að mega leggja af stað. Spangól er ekki óalgengt, þegar einn hefur upp raust sína má treysta því að hinir taka undir af innlifun.

Baldvin fór af stað með Ronju, Úlf, Leo og Zizou. Við köllum þessa leið í gegnum skóginn "Iron will" því þetta er umhverfi sem minnti fólk á bíómyndina. Orri fór á eftir honum með Kark, Hrímu, Rökkvu og Keano á sleðanum hennar Olgu. Svo fór hver sleðinn á fætur öðrum. Þorkell með Huginn og Sisku okkar (hans Viktors), Anna Marín með fimm hunda og farþega og svo loks Siggi með fjóra viljuga hunda.

Það er mjög gaman að horfa á eftir fólkinu inn í skóginn og leiðin er mjög skemmtileg en jafnframt nokkuð krefjandi fyrir kúskinn. Göngustígarnir eru mjóir og því gott að vera vel vakandi. Þeir sem ekki voru á sleða keyrðu á planið fyrir ofan Vífilstaðavatn til að taka á móti hersingunni. Þau komu öll skælbrosandi með spræka hunda inn á planið. Ferðin hafði gengið vel hjá öllum. Orri lenti í smá óhappi þar sem sleðinn lenti á fyrirstöðu með þeim afleiðingum að hann flaug fram yfir stýrið og á sleðann. Við það brotnaði framboginn. Heppilegt að handlagnir smiðirnir verða ekki lengi að bjarga því og sleðinn verður eins og nýr fyrir jólin.

Stóri sleðinn var tekinn af toppnum og brotni sleðinn settur á toppinn. Hundarnir settir fyrir framan nýjan sleða og áfram hélt Orri að Vífilstaðavatni og svo í kringum það. Lóa tók við teyminu af BH og kláraði ferðina með hundunum. Rósa tók við af Orra eftir hringinn í kringum vatnið og kláraði ferðina.

Baldvin hljóp með Elínu, sem stóð á sleða í fyrsta sinn, í kringum Vífilstaðavatn. Hún hafði þannig aðstoð ef á þurfti að halda og fékk hagnýtar upplýsingar um hvað væri gott að hafa í huga sem kúskur. Auðvitað gekk ferðin eins og í sögu og hún fór létt með þetta.

Ferðin sóttist vel hjá öllum og fólk afskaplega ánægt með hundana sem kláruðu 10 kílómetra ferð án vandræða.

LBK

Sunday, November 27, 2011

Heiðmörk

Fórum aftur í dag í Heiðmörk. Nota snjóinn á meðan hann er hérna á höfuðborgarsvæðinu. Orri og Rósa, Baldvin, Lóa og Karlotta tóku Úlf, Ronju, Leo, Kark, Zizou, Keano, Hrímu og Rökkvu og tvo sleða. Siggi kom með Foldu og Funa til að athuga hvort þetta væri svona gaman. Funa og Folda skelltu sér fyrir framan léttari sleðann spennt að prófa. Lóa tók að sér að standa á sleðanum til að byrja með. Orri og Karlotta réðust í stærra verkefnið - stærri sleðinn og átta hundar.

Þetta gekk ljómandi vel. Folda og Funi voru ansi spræk á eftir stóra sleðanum. Karlotta hafði nóg að gera við að losa flækjur eða hjálpa hundunum aftur af stað eftir smá stopp. Siggi tók fljótt við stjórninni á minni sleðanum og skemmti sér ansi vel með sínum hundum. Hugsa að hann sé fallinn fyrir sportinu líkt og við hin núna. Lóa tók þá við stóra teyminu eftir að Orri hafði sýnt fram á að þetta væri ekki eins mikil bilun og maður gæti haldið. Karkur karlinn var ekki alveg sáttur, kannski ekki furða með litla skessu sér við hlið. Hann tók sér smá pásu og var Ronja þá bara ein eftir í þeirra plássi. Ekki er hægt að segja að hún hafi staðið fyrir sínu, snillingur í að slaka á sinni línu og láta aðra hunda um erfiðið.

Karkur kom tvíefldur tilbaka eftir nokkra stund og var Ronja þá flautuð útaf fljótlega því hún var frekar slöpp í skapinu. Karkur ætlar í æfingabúðir í minna teymi. Vill fá betri tíma til að venjast þessum látum. Og svo má ekki gleyma að verðlauna hann vel og mikið í lok stuttra æfinga :o) Þá verður hann öflugur karlinn. Ronja hins vegar... vitum ekki alveg hvað á að gera við svona primadonnur. Hún veit það reyndar alveg - hún myndi helst vilja vera með svipu á sleðanum og stjórna hersingunni.

Fórum átta kílómetra í dag, heldur styttra en í gær vegna umferðar í jólaþorpið, og vorum verulega sátt eftir tveggja tíma útiveru með loðboltunum. Og auðvitað allir spenntir að drífa sig aftur fljótlega.

LBK

Saturday, November 26, 2011

SNJÓR

Í gærkvöldi var brunað á þremur sleðum eftir göngustígum hér í Mosfellsæ. Ronja, Úlfur, Leo og Keano og voru spennt fyrir einn sleða. Orri tók þau að sér og var tekin á Ippon yfir sleðann og í götuna. Ekki þægileg bylta en hann lifði af. Gangstéttakantar eru eitthvað til að vara sig á í framtíðinni. Baldvin tók yfir sleðann og hélt áfram. Sara var með fimm hunda spennta fyrir hennar sleða og gekk það vel. Rökkvi sem stendur alltaf fyrir sínu, Sparta, Jaki, Nala og fleiri drógu hana. Rökkva, Hríma, Karkur og Zizou drógu þriðja sleðann og stóð Olga á honum.

Þetta gekk ljómandi vel, Jökull og Lóa tóku sitt hvorn sleðann, hjá Olgu og Baldvin, og fóru í kringum nesið hér fyrir neðan. LBK fór svo með Úlf, Leo, Ronju og Keano tilbaka í Leirutangann. En Hildur Hörn tók við af Jökli með Rökkvu, Hrímu, Kark og Zizou tilbaka í Leirutangann. Á meðan Teddi tók við af Söru. Allir skemmtu sér vel og var krónískt bros á öllu liðinu, bæði hundum, kúskum og meðhjálpurum.

Gott að taka það fram að þegar verið er að leika sér á kvöldin í myrkrinu þá munar miklu að hafa ljós á taumum, höfuðljós á fólki, ljós á sleðum og hunda og menn í endurskinsvestum.

Í dag hélt svo sami hópur í Heiðmörk með þrjá sleða og sautján hunda. Sara var með Jaka, Rökkva, Nölu, Spörtu og einn til. Það gekk vel að fá hundana til að draga sleðann. Baldvin og Jökull voru hugaðir og spenntu átta stykki fyrir framan sinn sleða. Best gekk að hafa Rökkvu og Hrímu fremst, Leo og Úlf aftast og í miðju teymi voru Keano og Zizou saman og Ronja og Karkur. Karkur var flautaður útaf. Hann þarf smá meiri tíma til að venjast þessu öllu saman. Ronja var því ein meira og minna alla leið. Karkur var settur inná aftur í lokin og gekk þá miklu betur, mun sáttari. Kannski skipti máli að þá var Orri kúskur, gott að heyra kunnuglega rödd.

Enn einn sleði var með í för. Þekki ekki nöfnin á öllum hundum (það stendur til bóta) en veit að Klaki, Samoyed, var einn af þremur þar. Það var verið að hrista hópinn saman og verða þeir hundar fljótir að tileinka sér þetta.

Ferðin gekk vel og voru allir brosandi út að eyrum eftir tveggja tíma útiveru með skemmtilegu fólki og frábærum hundum. Það verður meira og meira gaman eftir því sem fleiri taka þátt og fleiri hundar verða vanir að draga byrðar.

Liðsmenn Siberian Express eru sannfærðir um að það verði fullt af snjó í vetur og okkur hlakkar mikið til að leika okkur í honum öllum stundum.

LBK

Monday, November 21, 2011

Myrkur

Eru ekki örugglega allir sýnilegir í myrkrinu. Minnum á að það er mikið öryggi í því að vera með endurskinsmerki á fólki og hundum þegar myrkrið er skollið á.

Endurskinsvesti á hundana eru ekki dýr og það er minna hallærislegt að vera í endurskinsvesti en að liggja mölbrotinn á Landspítalanum eftir að hafa orðið undir bíl!

LBK

Sunday, November 13, 2011

Góðra vina hópur

Félagar Siberian Express hittust allir í Mosfellsbænum í gærkvöldi og áttu góða kvöldstund saman. Söknuðum Viktors og Anneyjar og vonum að þau komist næst þegar við gerum okkur dagamun.

Þegar fólk hittist er spjallað um allt milli himins og jarðar. Það verður þó að viðurkennast að umræðuefnið vill einkennast af sameiginlegu áhugamáli, hundunum okkar og sleðasportinu. Sérkennilegast var kannski áhugi okkar á þessu lagi. Okkur þótti þetta frekar fyndið.

Allir eru orðnir spenntir að bíða eftir fyrsta snjónum hérna á suðvesturhorninu. En á meðan við bíðum njótum við veðurblíðunnar, viljum gjarnan fá minni rigningu samt.

Nokkrir voru orðnir spenntir fyrir næstu sýningu sem verður næstu helgi. Við vitum að Siberian Express hundarnir bera af hvar sem þeir koma... hvað sem hver dómari segir ;o)

Erum sammála um að vera orðin þokklega klár í veturinn og verðum sátt þegar allt verður hvítt !

LBK

Friday, November 11, 2011

Sjáumst

Í gær fórum við nokkur í Kópavoginn. Kristín tók Sacco vagninn í sína vörslu, skellti Úlfi og Leo fyrir vagninn og var heppin að ná beygjum á leiðinni. Lóa hjólaði með Ronju, Jökull með Keano og Zizou, Olga með Hrímu og Rökkvu en Baldvin fór sóló.

Við hjóluðum sem leið lá að Kópavogshöfn og þaðan í Nauthólsvík. Fórum um ellefu kílómetra og vorum mjög snögg. Hundarnir allir í góðum gír að Nauthólsvíkinni. Sumir ekki eins æstir á leiðinni tilbaka. Úlfur og Leo stóðu sig fantavel og drógu KAS alla leið, líka upp brekkurnar í lokin, með pínu aðstoð frá Olgu sem hjólaði þar með vagninum og hélt við með annarri hendi. Smá hint um hverjir voru ekki latir á leiðinni tilbaka... það var ekki Rökkva :o)

Ronja tók því rólegar á heimleið, en var samt dugleg. Keano og Zizou hægðu aðeins á sér en drógu samt alla leið. BH var skilinn eftir á snakki við fólk á hvolpanámskeiði. Allir mjög áhugasamir um þessa duglegu hunda að rugluðu eigendur þeirra :o)

Það er komið svartamyrkur um fimmleytið. Við mælum eindregið með því að fólk hjóli með hjálma á höfðinu, ljós á hjólinu og ljós á hundunum. Svo er alveg frábært að vera í endurskinsvestunum frá VÍS og setja hundana einnig í endurskinsvesti. Þetta eykur öryggi okkar, og allra hinna, á hjólastígum og í umferðinni.

LBK

Saturday, October 1, 2011

Bikejöring

Skelltum okkur þrjár með nokkra hunda út að hjóla. Lóa með Leloo og Hrímu, Svandís með Ronju og Olga með Rökkvu og Úlf. Þetta gekk mjög vel og allir hundarnir drógu vel.

Það er alltaf skemmtilegt að fara smá ævintýraferð. Hjóluðum í skóginum við Reykjalund og upp að Reykjafelli og tilbaka smá hring. Hjóluðum út um allan Mosfellsbæinn. Þrátt fyrir að enginn hafi verið með á hreinu hversu margir kílómetrar þetta voru giskum við á að þeir hafi verið á milli 15 og 20.

Þetta var góð hreyfing í ágætisveðri fyrir bæði hunda og menn. Gerum ráð fyrir að taka hjólin upp aftur núna. Spurning um að yfirfara bremsurnar og svona.

LBK

Tuesday, September 27, 2011

Íslandsmeistaramót SHKÍ, bikjöring, dog-scootering og canicross

Síðustu helgi var keppnin mikla á Þingvöllum. Við skunduðum þangað og tókum þátt. Baldvin og Teddi tóku þátt á laugardaginn. Teddi og Rökkvi kepptu í bikejöring og náðu sér í annað sætið. Baldvin var dreginn á keðjulausu hjóli af Hrímu og Úlfi. Þau stóðu sig vel bæði tvö upp brekkuna sem ætlaði engan endi að taka. Þegar um fjórir kílómetrar voru eftir kom eitthvað uppá með Hrímu. BH tók á það ráð að kippa henni í fangið og lét Úlf um að draga þau á hjólinu í mark, sem hann gerði. Þau náðu líka öðru sæti í sínum flokki. Við vorum afskaplega lukkuleg með árangur dagsins og hlökkuðum til að mæta í canicross á sunnudeginum.

Orri hljóp með Karki tíu kílómetra í karlaflokki. Baldvin hljóp tíu kílómetra í karlaflokki ásamt Ronju. Hún átti að vera heima þennan dag því hún er ansi mistæk. Til stóð að BH myndi hlaupa með Leloo. En þar sem Hríma var sár á loppunum eftir hlaupin daginn áður á grófu undirlaginu var endurraðað í teymi. Baldvin hljóp því með Ronju eins og áður sagði og stóð hún sig svona fanta vel. Dró betur en rakkarnir sem slegist var um áður. Olga hljóp með Leloo tíu kílómetra í kvennaflokki. Lóa og Úlfur fóru saman fimm kílómetra.

Hlaupið var í geysilega fallegu umhverfi í haustlitunum á Þingvöllum. Það hellirigndi á hlauparana sem voru ansi blautir er þeir komu í mark. Liðið er hæstánægt með árangur dagsins. Baldvin var í fyrsta sæti með Ronju og Orri í þriðja sæti með Karki í tíu kílómetra canicross karla. Olga nældi í annað sætið ásamt Leloo í tíu kílómetra canicross kvenna. Lóa náði svo fyrsta sætinu í fimm kílómetra canicross kvenna ásamt Úlfi.

Ekki má gleyma öðrum liðsfélögum sem lögðu hönd á plóginn. Sara stóð sig vel í mótsstjórn. Sá um ásamt rösku fólki að allt gengi hratt og vel fyrir sig. Alexandra og Rósa aðstoðuðu hlaupara og hjólafólk með hundana þegar þess þurfti og var gott að hafa þær til að létta undir með keppendum. Viktor og Anney komu og fylgdust með og voru í klappliðinu ásamt Alexöndru og Rósu.

Mótið var vel heppnað og skemmtilegt. Þrátt fyrir hressandi veður, smá rigningu á sunnudeginum og blástur báða dagana, skemmtu allir sér vel og eru sáttir eftir góða keppni þessa helgi.

Tíma keppenda er hægt að sjá á Sleðahundar.is

Takk fyrir okkur :o)

LBK

Thursday, September 8, 2011

Canicross

Erum byrjuð að hlaupa nokkur saman. Æfa þannig hundana og reyna að hvetja þá sem þurfa spá púst. Síðast liðinn mánudag hlupu Olga, Jökull, Garpur, Baldvin og Lóa frá Ánanaustum áleiðs að Gróttu. Fórum fimm kílómetra. Það var misjafnt hversu viljugir hundarnir voru. En við treystum á að með aukinni þjálfun komi þetta hjá öllum.

Í dag hlupu Olga, Jökull og Lóa fimm kílómetra í Nauthólsvík. Hvert með sína hunda. Það gekk ljómandi vel og voru hundar og menn ánægðir þegar komið var tilbaka. Við ætlum að halda þessu áfram og er stefnt að því að hittast aftur á mánudaginn til að hlaupa.

Við ætlum hins vegar að hittast öll á laugardaginn við Skarfagarða. Þar verður Sleðahundaklúbbur Íslands með kynningu á canicross. Vonum að sjálfsögðu að einhverjir hafi áhuga og láti sjá sig. Á endanum hlýtur fólk að átta sig á því að canicross er fyrir alla, ekki bara sleðahunda og þeirra eigendur.

LBK

Tuesday, September 6, 2011

Haustið að koma

Sunnudaginn 4. september hittumst við nokkur á Þingvöllum. Þar var klúbbfundur hjá Sleðahundaklúbbi Íslands. Við gengum ofan í Snjókagjá. Það reyndist meiri þraut en ráð var fyrir gert. Gengum í gömlu grjóthruni, upp og niður endalausar þrautir. Bæði fólk og hundar þurftu að hafa fyrir hlutunum og hugsa út í hvert skref til að ná á fóta sig. Menn skemmtu sér vel en sumir hundar áttu erfitt með að sætta sig við ósköpin. En allir komust samt á leiðarenda. Fólk hjálpaðist að við að koma hundum yfir mestu hindranirnar. Það var ekki auðvelt þegar hundur vildi alls enga hjálp, bara snúa við í hvelli. Erfiðast var þegar fólk var með tvo hunda. Þá var gott að eiga góða að sem gátu hjálpað yfir erfiðu hjallana.

Það voru glaðir og sælir félagar sem stigu upp úr gjánni og gengu tilbaka eftir góðum göngustíg. Baldvin gekk með Úlf, Lóa með Ronju, Olga með Rökkvu og Hrímu og Jökull með Zizou og Keano. Þar sem Keano var ekki að skilja þörfina fyrir að fara þessa leið var ákveðið að BH tæki Ronju með Úlfi og Lóa tæki Zizou. Jökull og Keano tóku svo slaginn saman og rakkinn jafnaði sig þannig að eftir var tekið. Var pollrólegur í lokin og virtist til í aðra ferð.

Það var þvílíkt blíðskaparveður og 14° hiti. Fólk var rennsveitt eftir þennan skemmtilega göngutúr. Alltaf gaman að fá svona framlengingu á sumrinu.

LBK

Wednesday, August 31, 2011

Álftanes

Klúbbfundur hjá Sleðahundaklúbbnum var haldinn í kvöld á Álftanesi. Baldvin gekk með Úlf, Lóa með Ronju, Rósa með Kark og Olga með Hrímu og Rökkvu. Þó nokkuð margir klúbbfélagar mættu og gengu saman. Nokkrir hjóluðu hringinn. Í lokin var svo farið til Önnu og Gulla í grillaðar pylsur og gos.

Þetta var hressandi ganga í góðum félagsskap og ekki laust við að fólk sé farið að hlakka til haustsins.

LBK

Wednesday, August 10, 2011

Canicross

Í gærkvöldi hittumst við nokkur, Baldvin, Lóa, Rósa, Sara og Teddi við Víkingsheimilið. Tilefnið var að taka myndir fyrir auglýsingu fyrir mótið í september.

Rósa var hlauparinn og fékk aðstoð frá Karki sínum. En þar sem þetta sport er fyrir alla sem vilja og geta verið með var Rökkvi fenginn til að aðstoða við hlaupin líka og myndir teknar af þeim saman.

Þetta gekk allt ljómandi vel, en spurning hvort BH vilji endurtaka leikinn eftir að hafa áttað sig á hvernig best væri að taka þessar myndir.

Eftir að hafa tekið myndir og náð nokkrum snilldarskotum af fallegu fyrirsætunum var farinn smá hlaupatúr.

Rósa, Lóa og Baldvin hlupu, hvert með sinn hund, að Nauthólsvík og tilbaka. Þetta voru rúmlega átta kílómetrar og voru allir góðir eftir skokkið. Gaman að skokka í samfloti með öðrum. Kennir hundunum að vera í hóp, vinna og einbeita sér. Karkur þurfti aðeins að kanna reglulega hvernig Ronja hefði það. En hann verður fljótur að læra hvenær má leika og hvenær hann er upptekinn. Baldvin og Úlfur voru aðeins á undan og Ronja togaði því ágætlega því hún er viljug að ná í rassinn á rökkunum sínum.

Það er ágætt að skokka á svona fjölförnum stíg. Kennir manni að hafa augun hjá sér og vera meðvitaður um umhverfið. Svo það verði ekki hjólað yfir mann. Það er líka ágætt að hundarnir læri með tímanum að skipta sér ekki af öðru fólki né hundum. Þeim finnst það frekar erfitt.

LBK

Saturday, August 6, 2011

Hvassahraun

Fórum miðvikudaginn 3. ágúst í Hvassahraun og hittum fólk úr Sleðahundaklúbbi Íslands. Fjölmennasti klúbbfundur hingað til. Nítján manns og sextán hundar. Gengum tæplega átta kílómetra eftir malarvegi meðfram Reykjanesbrautinni. Nokkrir hjóluðu. Mikið spjallað og hlegið á leiðinni. Baldvin gekk með Úlfi og Lóa með Ronju. Sara gekk með Jaka og Teddi með Rökkva. Orri gekk með Karki og Rósa gekk með okkur.

Það fer að verða hefð að fá sér ís eftir að hreyfa hundana, bæta sér upp hitaeiningatapið. Fórum í ísbúðina í Garðabæ. Rosalega gott og milt veður, talað um smá útlandafíling.

Nú vonum við að það verði jafngóð mæting í vetur eins og undanfarið. Það er ekki laust við að okkur sé farið að hlakka til er kólna fer í veðri. En höfum vit á að njóta sumarsins á meðan það varir.

LBK

Wednesday, July 6, 2011

Ánanaust

Hittumst á Olís við Ánanaust. Tilefnið var Sleðahundaklúbbshittingur. Siberian Express klikkar ekki á því að vera með fulltrúa þegar svona eðalfólk og hundar ákveða að hreyfa sig saman. Baldvin og Lóa Björk mættu með Úlfi og Ronju. Kristín kom með Zizou og Keano, Rósa og Orri komu með Karki. Auk þeirra voru Kári og Guðrún með Funa, Tind, Bresa og Ynju. Sigurður kom ásamt sinni kvinnu og dóttur, með þeim komu Funi og Folda.

Eins og áður hefur fólk sína hentisemi með það hvernig hreyfing hentar þeim þann daginn. Sigurður og Kári hjóluðu með sína hunda, Lóa og Baldvin skokkuðu með sín tvö. Annars gengu allir og spjölluðu saman á göngustígnum að Gróttu. Þar sem Tindur á afmæli í dag var öllum hundum boðið bein að lokinni hreyfingu og mannfólkið endaði í Ísgerðinni þar sem smjattað var á ís og haldið áfram að spjalla um hunda og fótbolta og ratleiki og fleira skemmtilegt.

LBK

Tuesday, June 14, 2011

Kópavogur

Fórum nokkur saman tólf kílómetra hring í Kópavogi í gærkvöldi. Ferðin hófst við höfnina. Kjartan Elvar og Baldvin voru á Sacco vagninum, sem dreginn var af Úlfi og Spörtu. Þau voru afskaplega dugleg í þessari ferð, mesta vinnan lenti á þeim. Alexandra var á línuskautum og hafði Aladdin með sér, hann er af tegundinni Saluki. Hún ákvað að hafa hann rólegan, var ekki alveg viss hvort hún myndi standa ef hann tæki á stökkið því hraðinn sem hann nær er töluverður. Jökull var einnig á línuskautum og var með Zizou og Keano sem ákváðu að vera rosa dugleg seinni hluta leiðarinnar. Lóa var dregin af Ronju eins og oft áður. Ronja var mjög dugleg ef Sacco vagninn var á undan, annars var hún pínu einmana. Merkilegt hvað vagninn var oft á undan niður brekkurnar og mátti LBK þá hafa sig alla við. Aníta hetja línuskautaði sjálf alla leið, hafði engan hund til að hjálpa sér. Hún fékk aðstoð niður brekkurnar, þá hélt hún sér í vagninn til að stjórna hraðanum.

Ferðin gekk mjög vel og var fólk sammála um að þetta væri skemmtilegur og hæfilega erfiður hringur fyrir línuskauta fólk. Brekkurnar ekki óviðráðanlegar og ekki of margar. Mælum samt með meira flatlendi fyrir þá sem eru að byrja.

Í morgun fór svo LBK með Úlf og Ronju í canicross. Fórum fimm kílómetra og af þeim skokkuðum við 4,5 km. Hundarnir mættu alveg toga meira, full tillitsamir við hlauparann sem væri alveg til í aðeins meira tog. Best er að hafa millitaum í hálsólarnar þegar skokkað er, það heldur þeim betur við efnið en þegar þau hafa meira svigrúm. Spurning hvort togið yrði meira ef hraðar væri hlaupið. Prófum það við tækifæri.

LBK

Sunday, June 5, 2011

Línuskautar

Í gær fóru Baldvin með Úlf, Lóa með Ronju og Jökull með Zizou og Keano í línuskautaferð í Nauthólsvík. Sara var á hjóli með Jaka og Rökkva. Ferðin sóttist vel og nú þurfti ekki að bíða eftir LBK sem er orðin þokkaleg á línuskautunum með togara og kemst þannig hraðar yfir. Vegalengdin er eins og áður tæplega átta kílómetrar. Þegar haldið er vel áfram og lítið stoppað tekur ferðin um tuttugu mínútur. Zizou og Keno voru ekki alveg í stuði og var JIE því aðeins á eftir en lét hundana hafa fyrir þessu. SRS kvartaði yfir smá athyglisbresti í Jaka og Rökkva. Það breyttist snarlega þegar þeir voru settir með BH og Úlfur fyrir framan hjólið. Hjólið fór á undan og hundarnir settu beint í fluggírinn og drifu sig á eftir. Ronja og Úlfur voru í fullu fjöri alla leiðina. Ronja er reyndar alltaf best ef BH og Úlfur eru fyrir framan. Hún virðist aðeins einmana ef hún fer fremst í flokki.

Nú í kvöld hittust BH, LBK og JIE við Víkingsheimilið. Allir ætluðu á línuskauta. Þá er gott að muna eftir þeim, ekki bara hlífunum og hjálminum. Það hjálpar að hafa þá meðferðis. Það fékk LBK að reyna. Svo hún endaði hundlaus ein með sjálfri sér í göngutúr. Það gerist ekki aftur. BH tók bæði Ronju og Úlf sem voru í stuði eins og stundum áður. JIE var með Zizou og Keano og voru þau öllu viljugri en kvöldið áður. Ferðin sóttist vel og var haldið í Nauthólsvíkina. Þar varð smá óhapp hjá JIE. Steinn festist í einu hjólinu og var ekki hlaupið að því að losa hann. Þau fóru því ekki tilbaka heldur voru sótt á staðinn. Verða tilbúin aftur þegar búið verður að ná steina úr hjólinu.

Þetta er afskaplega skemmtilegt sport fyrir þá sem geta staðið á línuskautum. Fjölbreytni við hreyfingu á fólki og hundum er nauðsynleg.

LBK

Thursday, June 2, 2011

Nauthólsvík

Við skelltum okkur í Nauthólsvíkina seinnipartinn og smelltum á okkur línuskautana. Smá fiðringur í sumum áður en haldið var af stað. Spurning um hversu auðvelt (erfitt) er að standa í lappirnar þegar maður er dregin áfram af viljugum og þrautþjálfuðum dráttarhundum. Allir voru spenntir og voru teymin þannig skipuð: Karkur dró Rósu á hjóli, Jaki dró Tedda á hjóli, Baldvin var dreginn á línuskautum af Úlfi og Zizou, Jökull var einnig á línuskautum og var dreginn af Keano og Ronju, Olga var með Rökkvu og Hrímu fyrir framan sig, Sara var dregin af Rökkva en ákvað fljótlega á leiðinni að fá Jaka með honum í lið. Lóa ákvað að nota eigið fótaafl í upphafi ferðar en tók með sér taum til að eiga möguleika á aðstoð.

Allir fóru sem leið lá að Ægissíðu, hver á sínum hraða. BH og ORB stungu alla af, enda með ansi viljuga hunda sér til aðstoðar. Þeirra helsta verkefni var að lifa af og standa á línuskautunum þrátt fyrir þó nokkurn hraða. Ronja var ekki alveg í stuði fyrir að láta stinga sig af og því var Jökull fljótur að ná þeim. Er komið var á Ægissíðuna þar sem við snúum venjulega við, var beðið eftir LBK sem rak lestina.

Þegar haldið var tilbaka að Nauthólsvík ákvað LBK að fá Ronju sér til aðstoðar. BH tók þá Keano og Jökull fékk Zizou. Leiðin tilbaka gekk glimrandi vel og allir hundar í góðum gír. LBK alsæl með að ná smá öryggi með hundinn fyrir framan sig en rak samt lestina einnig í þetta sinn. Ferðalagið var 7,3 km og tók okkur klukkustund.

Allir alsælir með líkamsrækt dagsins og geta ekki beðið eftir að komast á línuskautana aftur og fá aðstoð ferfætlingana til að komast hraðar yfir.

LBK

Monday, May 9, 2011

Canicross

Við erum öll dugleg í canicross. Við eigum öll mittisólar og spennum hundana venjulega við þær í gönguferðum. BH hefur prófað að hlaupa með Ronju og Úlf. Það hefur alltaf gengið vel og er hann þá að hlaupa yfir getu því hundarnir toga hann áfram. ORB hefur aðeins prófað að hlaupa með Hrímu og Rökkvu og finnst það mjög gaman.

Nú ætlar LBK að hlaupa með Ronju og Úlf reglulega og hefur það gengið vel þau fáu skipti sem komin eru. Hundarnir eru fljótir að stilla sig inn á hlauparann og taka tillit til hraða og getu viðkomandi. Þetta er góð leið til að halda þeim við efnið í hreyfingu dagsins. Þau eru ekki eins upptekin af umhverfinu þegar hlaupið er með þeim eins og þegar hægar er farið yfir. Þau eru einbeittari í að halda áfram og hlusta betur á skipanir.

Þetta er líka mjög góð leið til að halda kúskum í þjálfun fyrir veturinn þegar sleðinn verður tekinn upp aftur. Allir vita að kúskurinn stendur ekki bara og slappar af á meðan hundarnir púla.

LBK

Sunday, May 1, 2011

Selfoss

Skelltum okkur yfir heiðina og hittum félaga úr Sleðahundaklúbbnum. Hittum þar hunda sem okkur hlakkar til að kynnast betur. Tókum með okkur nýja Saccovagninn sem var nýttur í lok ferðarinnar. Smá hringur tekinn til að prófa græjuna á sléttlendinu. Annars gengum við saman stóran hring frá Byko planinu. Sannkölluð breiðfylking hunda og manna. Allir glaðir eftir skemmtilega samveru.

Saturday, April 9, 2011

Keilir

Nokkrir kúskar lögðu af stað snemma morguns með hundana sína upp að Keili.
Bjuggumst við aðeins betra veðri en fengum grenjandi rigningu, hífandi rok og þoku mest alla leiðina. Hundarnir stóðu sig allir vel og drógu okkur upp fjallið.

Um 8 km fjallganga sem við fórum á 2 klst og vorum öll rennandi blaut eftir gönguna.
Siberian Express getur núna krossað Keili út af "to do " listanum.

BH var með Úlf
KEB var með Ronju
ABE var með Spörtu
ORB var með Rökkvu
Orri var með Kark
og Rósa skokkaði án hunds.

Friday, April 8, 2011

Línuskautar

Erum byrjuð að æfa okkur á línuskautum, því að snjórin er farin og þá getum við ekki farið á sleðana okkar. Svo er svo erfitt að drösla hjólunum alltaf á milli. Þannig að línuskautar skulu það vera. BH er þegar farin að festa Úlf framan á sig og gengur rosalega vel. ABE og LBK fóru á línuskauta án hunda í dag, sem gekk ágætlega, þær festa svo drottningarnar Spörtu og Ronju á sig innan skamms.

Fórum í 6,9 km ferð í kvöld um Kópavog.

BH á línuskautum með Úlf
ORB á hjóli með Ronju og Rökkvu
ABE, LBK og KBB voru á línuskautum án hunda.

Reynum kannski að taka myndir og setja hérna inn svo þið sjáið okkur fljúga á hausin :D
Þess má geta að við erum með hlífar allstaðar og hjálm á hausnum.

Saturday, March 19, 2011

Íslandsmeistarar í kúski á hundasleða 2011

Náðum skemmtilegum áfanga með sigri í Íslandsmeistarakeppni Sleðahundaklúbbs Íslands 13. mars 2011 kl. 10:01 á Mývatni. Fórum 5 km á 26 mínútum og 31 sekúndu. Rétt tæpum þremur mínútum hraðar en næsta lið. Ronja, Úlfur, Siska og Hríma stóðu sig frábærlega.

Alexandra, Karlotta Brynja og Olga kepptu líka með mjög góðum árangri og allir voru mjög sáttir eftir helgina.

Tuesday, March 1, 2011

Æfingar við Nesjavallaveg

Tókum nokkrar ferðir meðfram Nesjavallavegi á dögunum í frábæru veðri og fínu færi. Hópurinn er allur að koma til og við farin að hlakka til að læra nýja hluti á námskeiði með Ararad á Mývatni 11. mars. Stutt myndbrot af æfingunum má sjá á slóðinni http://www.youtube.com/watch?v=0AN72QbiBNA - Hér hlaupa Siska, Zizou, Keano, Hríma, Ronja og Úlfur með ORB á sleðanum og LBK og VMB á myndavélinni. Þau máttu hafa sig öll við til að halda í við hópinn.

Sunday, February 13, 2011

Kvöldkúsk

Áðan lögðu 6 kúskar, 1 hjólkúskur, og 14 hundar í ævintýralega sleðaferð um götur/ gangstéttir Mosfellsbæjar. Við nýtum allan snjó sem við fáum svo að við lögðum af stað kl 21.00 frá L1 og fórum ca 5 km.
Kári með Tind, Funa og Bresa
Olga/ BH með Ronju, Úlf, Sisku og Hrímu
Sveinn með Klaka og Úlfynju
Sara / Alexandra með Ynju, Huginn, Jaka, Spörtu og Rökkva
Lóa hjólaði svo með.

Eins og þið sjáið þá voru 2 kúskar á tveim sleðum. Svo að allir kæmust með, það heppnaðist nú alveg hreint ágætlega.

Frábær ferð sem gekk vel í alla staði og verður seint toppuð.

Saturday, February 5, 2011

Fellsendavatn 2011.02.05

BH og ORB fóru 20,52km ferð á tveimur sleðum með sex hunda frá Fellsendavatni og inn hálendið. Farið var inn að gatnamótum leiðar að Jökulheimum og Veiðivötnum og snúið við þar. Leiðin sóttist ágætlega og hundarnir stóðu sig með prýði auðvitað. Þetta er allt undirbúningur fyrir sleðahundakeppni á Mývatni í mars. Auk þess sem þetta er bara svo FERLEGA skemmtilegt.

Tuesday, January 18, 2011

Bláfjöll

Fórum í dag með nokkrum félögum í Sleðahundaklúbbi Íslands og skemmtum okkur saman í Bláfjöllum. Alltaf verið að vinna að því að kynna sleðahundasportið betur og betur og vonandi kemur eitthvað gott út úr þessu í dag. Höfðum með okkur frábæra fréttakonu og myndatökumann sem var algjör snillingur! Nú verður gaman að sjá hvað kemur út úr þessu.

Saturday, January 15, 2011

Sleðaferð við Vatnsfellsvirkjun

Fórum með sex hunda og tvo sleða í frábæra sleðaferð í dag. Ákváðum að leita uppi snjó þó það þýddi svolítinn bíltúr. Færið var mjög fínt en það hefði mátt vera örlítið meira af snjó. Þó vel nothæft. Náðum 13km ferð og bæði hundar og menn skemmtu sér konunglega!

Á morgun, sunnudag, verður farin ferð með Sleðahundaklúbbi Íslands á sama stað. Við ætlum að fjölmenna og hafa ekki minna gaman en í dag!

Saturday, January 1, 2011

Gamlársfjör við Tjörnina í Reykjavík

Við fórum að Tjörninni í Reykjavík á hádegi á gamlársdag. Hittum þar fjöldan allan af hundum og frábærum eigendum. Færið var ómögulegt til að hjóla eða gera nokkuð af viti. Hrikalega sleipt á öllum stígum. En þetta var skemmtilegt engu að síður og við enduðum í góðum hóp í Tjarnarsalnum á Ráðhúsinu þar sem við sötruðum heitt súkkulaði og mauluðum kexkökur á milli þess sem skipst var á góðum sögum. Fínn endir á góðu ári.