Tuesday, September 27, 2011

Íslandsmeistaramót SHKÍ, bikjöring, dog-scootering og canicross

Síðustu helgi var keppnin mikla á Þingvöllum. Við skunduðum þangað og tókum þátt. Baldvin og Teddi tóku þátt á laugardaginn. Teddi og Rökkvi kepptu í bikejöring og náðu sér í annað sætið. Baldvin var dreginn á keðjulausu hjóli af Hrímu og Úlfi. Þau stóðu sig vel bæði tvö upp brekkuna sem ætlaði engan endi að taka. Þegar um fjórir kílómetrar voru eftir kom eitthvað uppá með Hrímu. BH tók á það ráð að kippa henni í fangið og lét Úlf um að draga þau á hjólinu í mark, sem hann gerði. Þau náðu líka öðru sæti í sínum flokki. Við vorum afskaplega lukkuleg með árangur dagsins og hlökkuðum til að mæta í canicross á sunnudeginum.

Orri hljóp með Karki tíu kílómetra í karlaflokki. Baldvin hljóp tíu kílómetra í karlaflokki ásamt Ronju. Hún átti að vera heima þennan dag því hún er ansi mistæk. Til stóð að BH myndi hlaupa með Leloo. En þar sem Hríma var sár á loppunum eftir hlaupin daginn áður á grófu undirlaginu var endurraðað í teymi. Baldvin hljóp því með Ronju eins og áður sagði og stóð hún sig svona fanta vel. Dró betur en rakkarnir sem slegist var um áður. Olga hljóp með Leloo tíu kílómetra í kvennaflokki. Lóa og Úlfur fóru saman fimm kílómetra.

Hlaupið var í geysilega fallegu umhverfi í haustlitunum á Þingvöllum. Það hellirigndi á hlauparana sem voru ansi blautir er þeir komu í mark. Liðið er hæstánægt með árangur dagsins. Baldvin var í fyrsta sæti með Ronju og Orri í þriðja sæti með Karki í tíu kílómetra canicross karla. Olga nældi í annað sætið ásamt Leloo í tíu kílómetra canicross kvenna. Lóa náði svo fyrsta sætinu í fimm kílómetra canicross kvenna ásamt Úlfi.

Ekki má gleyma öðrum liðsfélögum sem lögðu hönd á plóginn. Sara stóð sig vel í mótsstjórn. Sá um ásamt rösku fólki að allt gengi hratt og vel fyrir sig. Alexandra og Rósa aðstoðuðu hlaupara og hjólafólk með hundana þegar þess þurfti og var gott að hafa þær til að létta undir með keppendum. Viktor og Anney komu og fylgdust með og voru í klappliðinu ásamt Alexöndru og Rósu.

Mótið var vel heppnað og skemmtilegt. Þrátt fyrir hressandi veður, smá rigningu á sunnudeginum og blástur báða dagana, skemmtu allir sér vel og eru sáttir eftir góða keppni þessa helgi.

Tíma keppenda er hægt að sjá á Sleðahundar.is

Takk fyrir okkur :o)

LBK

Thursday, September 8, 2011

Canicross

Erum byrjuð að hlaupa nokkur saman. Æfa þannig hundana og reyna að hvetja þá sem þurfa spá púst. Síðast liðinn mánudag hlupu Olga, Jökull, Garpur, Baldvin og Lóa frá Ánanaustum áleiðs að Gróttu. Fórum fimm kílómetra. Það var misjafnt hversu viljugir hundarnir voru. En við treystum á að með aukinni þjálfun komi þetta hjá öllum.

Í dag hlupu Olga, Jökull og Lóa fimm kílómetra í Nauthólsvík. Hvert með sína hunda. Það gekk ljómandi vel og voru hundar og menn ánægðir þegar komið var tilbaka. Við ætlum að halda þessu áfram og er stefnt að því að hittast aftur á mánudaginn til að hlaupa.

Við ætlum hins vegar að hittast öll á laugardaginn við Skarfagarða. Þar verður Sleðahundaklúbbur Íslands með kynningu á canicross. Vonum að sjálfsögðu að einhverjir hafi áhuga og láti sjá sig. Á endanum hlýtur fólk að átta sig á því að canicross er fyrir alla, ekki bara sleðahunda og þeirra eigendur.

LBK

Tuesday, September 6, 2011

Haustið að koma

Sunnudaginn 4. september hittumst við nokkur á Þingvöllum. Þar var klúbbfundur hjá Sleðahundaklúbbi Íslands. Við gengum ofan í Snjókagjá. Það reyndist meiri þraut en ráð var fyrir gert. Gengum í gömlu grjóthruni, upp og niður endalausar þrautir. Bæði fólk og hundar þurftu að hafa fyrir hlutunum og hugsa út í hvert skref til að ná á fóta sig. Menn skemmtu sér vel en sumir hundar áttu erfitt með að sætta sig við ósköpin. En allir komust samt á leiðarenda. Fólk hjálpaðist að við að koma hundum yfir mestu hindranirnar. Það var ekki auðvelt þegar hundur vildi alls enga hjálp, bara snúa við í hvelli. Erfiðast var þegar fólk var með tvo hunda. Þá var gott að eiga góða að sem gátu hjálpað yfir erfiðu hjallana.

Það voru glaðir og sælir félagar sem stigu upp úr gjánni og gengu tilbaka eftir góðum göngustíg. Baldvin gekk með Úlf, Lóa með Ronju, Olga með Rökkvu og Hrímu og Jökull með Zizou og Keano. Þar sem Keano var ekki að skilja þörfina fyrir að fara þessa leið var ákveðið að BH tæki Ronju með Úlfi og Lóa tæki Zizou. Jökull og Keano tóku svo slaginn saman og rakkinn jafnaði sig þannig að eftir var tekið. Var pollrólegur í lokin og virtist til í aðra ferð.

Það var þvílíkt blíðskaparveður og 14° hiti. Fólk var rennsveitt eftir þennan skemmtilega göngutúr. Alltaf gaman að fá svona framlengingu á sumrinu.

LBK