Saturday, October 16, 2010

Hlaupið á Ægisíðu

Fórum 8km rúnt í dag með nokkrum félögum í Sleðahundaklúbbi Íslands. Frábær félagsskapur en örlítið napurt veður. Ringdi á hópinn annað slagið og eins og helt úr fötu í lok ferðar. Það hefur greinilega jákvæð áhrif að vera í svona hóp því hundarnir drógu öll vel og espa hvert annað upp í að hlaupa.

Monday, October 11, 2010

Slysavaktin

Af einhverri ástæðu lærðum við lítið af því þegar SBK flaug fram fyrir sig á hjólinu seint í sumar. Nú tók önnur falleg flugkona sig til og straujaði í götuna með engar hlífar! Fórum ágætan túr með 9 hunda (7km) en enduðum á frekar súrum smelli og eftir situr ein með hruflaða lófa og tak í baki, marða fætur og eitt líf af níu upptekið við annað.

Þetta endar líklega vel í þetta sinn en NOTUM HLÍFAR þegar við hjólum með hundana okkar. Það MARG borgar sig.