Mættum á föstudegi og flestir voru alla helgina og tíndust af svæðinu upp úr 14:00 á sunnudegi. Það var keppt í hjóladrætti (tveir hundar í liði), innkalli og dekkjadrætti með smá hlaupi og beislisásetningu... auk búningakeppninnar og fleira svona tilfallandi.
Siberian Express náði 4., 5., 7. og 8. sæti af 10 í hjólakeppninni með Ronju, Úlf, Spörtu, Jaka, Zizou og Keano blönduð á nokkra vegu. Alveg þokkalega sátt við það en greinilega að einhverju að stefna! Sara grillaði svo innkallskeppnina með Jaka seinna um daginn.
Frábær félagskapur og mikið fjör. Hundunum fannst reyndar aðeins of heitt þegar hitinn var sem mestur en eigendurnir höfðu yfir engu að kvarta og komu kaffibrúnir heim.
No comments:
Post a Comment