Sunday, August 29, 2010

Fundað um sleðahunda og hundasleða

Við tókum þátt í skemmtilegum fundi um sleðahunda og hundasleða að Barðastöðum 1 þar sem nálægt 30 einstaklingar ræddu ýmis mál tengd sportinu. Fyrst var rætt um fyrirhugaða sleðahundakennslu með Ararat snemma næsta vor eða síðla vetrar. Þá var farið yfir hugsanlega stofnun sleðahundaklúbbs sem hefði það að markmiði að efla sportið og hugsanlega standa fyrir uppákomum tengdum því. Að lokum voru lagðar fram hugmyndir um sameiginlega smíði á hundasleðum í vetur. Það er óhætt að segja að fólk hafði mikinn áhuga á því sem um var rætt og komu fram mjög fjölbreytt og áhugaverð sjónarmið í tengslum við fundarefni.

Nokkrir einstaklingar í hópnum tóku að sér að hafa veg og vanda að undirbúningi fyrir námskeið í mars 2011.

Unnið er að því að skoða hvernig best er að standa að stofnun sleðahundafélags á Íslandi, hugsanlega fyrir áramótin 2010-2011.

Líklegt er að farið verði í smíði um eða yfir tíu hundasleða á næstu vikum og mánuðum.

Við hlökkum til að fylgja þessum málum eftir og sjá sleðahundasportið taka enn hærra flug á komandi vetri.

No comments:

Post a Comment