Sunday, October 14, 2012

Komum, sáum og sigruðum

Óhætt að segja að við séum afskaplega sæl og glöð eftir vel heppnað Krýsuvíkurhlaup á vegum Draghundasports um helgina. Við tókum þátt í tveimur greinum sitt hvorn daginn þessa helgi. Jökull, Rósa og Baldvin kepptu, á laugardaginn, í Scooter flokki, með tvo hunda hvert. Jökull og Baldvin voru með Siberian Express hunda, sína hunda. Rósa ákvað að taka þátt og fá lánaða hunda frá "Grænlendingunum" og auka þannig fjölda keppenda. Á sunnudaginn, í dag, kepptu Orri með Kark, Halli með Rökkvu og Lóa með Úlf - allt Siberian Express hundar.

Á laugardaginn ákváðu veðurguðirnir, líkt og á Þingvöllum fyrr í október, að hella úr öllum fötum sínum yfir okkur. Það rigndi allsvakalega á bæði menn og hunda. Lognið var líka eitthvað að flýta sér, rokið var rosalegt og voru keppendur í scooterflokki heppnir að það stóð í bakið á þeim. Keppnin gekk vel og komu allir heilir í mark, alls níu teymi. Okkar hundar stóðu sig svona líka ágætlega. Úlfur og Leo drógu Baldvin í mark á tímanum 60 mínútur og 32 sekúndum. 1. sætið var þeirra. Zizou og Keano drógu Jökul í mark á tímanum 68 mínútur og 36 sekúndum. Þau höfnuðu í 3. sæti. Rósa var í 8. sæti með grænlensku hundana tvo (sem ég man ekki nafnið á núna).

Í ljósi aðstæðna eru þetta hetjurnar okkar eftir helgina. Úrhellið var rosalegt og vindurinn á þvílíkri hraðferð. Við erum því afskaplega lukkuleg með hvað við erum vel útbúin í fötum frá bæði UnderArmour og 66°N. Ekkert okkar varð blautt í gegnum skeljarnar okkar og engu okkar varð kalt í hlýjum undirfötum. Þannig að þegar fólk talar um vont veður og ekki hundi út sigandi, þá skiljum við ekki um hvað er verið að tala. Við erum meira fyrir að klæða okkur eftir veðri og drífa okkur út að leika.

Í dag, sunnudag, var hins vegar sól og heiðskírt. Hitinn engu að síður ákjósanlegur fyrir hunda og menn í bikjöring. Keppnin gekk vel og allir komu heilir í mark, alls níu teymi. Orri, Halli og Lóa ræstu hvert á eftir öðru í miðjum hópi níu liða. Ferðin gekk vel hjá öllum þremur og komu þau sátt í mark eftir átökin. Orri og Karkur í 1. sæti á tímanum 55 mínútur. Halli og Rökkva í 2. sæti á tímanum 56 mínútur og svo Lóa og Úlfur á tímanum 60 mínútur.

Hérna kemur þetta sundurliðað og fínt:

Krýsuvíkurhlaup Draghundasports

Scooter með tvo hunda
1. sæti: Baldvin, Úlfur og Leo (60:32")
3. sæti: Jökull, Zizou og Keano (68:36")
8. sæti: Rósa, Tirena (siberianhusky) og grænlenskur rakki (84:20")

Bikejöring með einn hund
1. sæti: Orri og Karkur (55 mín)
2. sæti: Halli og Rökkva (56 mín)
3. sæti: Lóa og Úlfur (60 mín)

Við erum afskaplega ánægð að hafa tekið þátt í þessari keppni. Við skemmtum okkur vel í góðum félagsskap og þökkum aðstandendum mótsins kærlega fyrir vel heppnaða helgi.

LBK

No comments:

Post a Comment