Undirrituð er ekki vel að sér í hundasýningum. Hér ber að taka viljann fyrir verkið.
HRFÍ var með hundasýningu síðustu helgi og eins og flestir vita þá eru þær vel sóttar af hundum og eigendum þeirra. Yfirleitt í kringum 800 hundar skráðir í heildina. Siberian Husky, uppáhaldið okkar, eru oft í kringum 30 - 60 talsins á hverri sýningu. Það er talað um að gæði stofnsins á Íslandi sér með eindæmum ágætur og hundarnir fallegir og samsvara sér vel upp til hópa.
Það er misjafn áhugi fólks á hundasýningum en nokkrir Siberian Express hundar eru svo fjöhæfir að þeir eru bæði að vinna fyrir eigendur sína og slá hvergi af í getu né þoli - en einnig trítla þeir hringinn og sýna sig og sjá aðra þegar sýningar eru haldnar. Og auðvitað finnst okkur þau alltaf bera af... alltaf :)
þeim gengur alltaf vel og hafa alltaf fengið afbragðs dóma. En það gengur samt misvel því dómarar eru misjafnir og sitt sýnist hverjum.
Nokkrir hundar liðsins tóku þátt í síðustu sýningu og þrátt fyrir að vera öll að vilja gerð þá hef ég ekki hugmynd um dóma allra né nöfn allra sem tóku þátt :)
Veit bara að allir voru súper sáttir og ánægðir eftir sýninguna og góðan árangur.
Hins vegar, og það veit líka ég, þá bar Hríma höfuð og herðar yfir allt og alla á þessari sýningu. Drottningin gerði sér lítið fyrir og vann allt sem hægt er að vinna á einni sýningu. Eftir að hafa toppað bæði, tíkur og rakka og yngra liðið og tegundagrúbbuna... þá rúllaði hún sýningunni upp og endaði sem besti hundur sýningar - það toppar það ekkert (sko á sýningum).
Eins og okkur finnst frábært þegar Síberíu Husky er valinn besti hundur sýningar, þá finnst okkur náttúrulega ennþá meira frábært að sá hundur skuli nú koma úr okkar röðum :)
Hér er Hríman svo með allt gullið sitt eftir helgina :)
LBK

No comments:
Post a Comment