Við skelltum okkur í Nauthólsvíkina seinnipartinn og smelltum á okkur línuskautana. Smá fiðringur í sumum áður en haldið var af stað. Spurning um hversu auðvelt (erfitt) er að standa í lappirnar þegar maður er dregin áfram af viljugum og þrautþjálfuðum dráttarhundum. Allir voru spenntir og voru teymin þannig skipuð: Karkur dró Rósu á hjóli, Jaki dró Tedda á hjóli, Baldvin var dreginn á línuskautum af Úlfi og Zizou, Jökull var einnig á línuskautum og var dreginn af Keano og Ronju, Olga var með Rökkvu og Hrímu fyrir framan sig, Sara var dregin af Rökkva en ákvað fljótlega á leiðinni að fá Jaka með honum í lið. Lóa ákvað að nota eigið fótaafl í upphafi ferðar en tók með sér taum til að eiga möguleika á aðstoð.
Allir fóru sem leið lá að Ægissíðu, hver á sínum hraða. BH og ORB stungu alla af, enda með ansi viljuga hunda sér til aðstoðar. Þeirra helsta verkefni var að lifa af og standa á línuskautunum þrátt fyrir þó nokkurn hraða. Ronja var ekki alveg í stuði fyrir að láta stinga sig af og því var Jökull fljótur að ná þeim. Er komið var á Ægissíðuna þar sem við snúum venjulega við, var beðið eftir LBK sem rak lestina.
Þegar haldið var tilbaka að Nauthólsvík ákvað LBK að fá Ronju sér til aðstoðar. BH tók þá Keano og Jökull fékk Zizou. Leiðin tilbaka gekk glimrandi vel og allir hundar í góðum gír. LBK alsæl með að ná smá öryggi með hundinn fyrir framan sig en rak samt lestina einnig í þetta sinn. Ferðalagið var 7,3 km og tók okkur klukkustund.
Allir alsælir með líkamsrækt dagsins og geta ekki beðið eftir að komast á línuskautana aftur og fá aðstoð ferfætlingana til að komast hraðar yfir.
LBK
No comments:
Post a Comment