Tuesday, June 14, 2011

Kópavogur

Fórum nokkur saman tólf kílómetra hring í Kópavogi í gærkvöldi. Ferðin hófst við höfnina. Kjartan Elvar og Baldvin voru á Sacco vagninum, sem dreginn var af Úlfi og Spörtu. Þau voru afskaplega dugleg í þessari ferð, mesta vinnan lenti á þeim. Alexandra var á línuskautum og hafði Aladdin með sér, hann er af tegundinni Saluki. Hún ákvað að hafa hann rólegan, var ekki alveg viss hvort hún myndi standa ef hann tæki á stökkið því hraðinn sem hann nær er töluverður. Jökull var einnig á línuskautum og var með Zizou og Keano sem ákváðu að vera rosa dugleg seinni hluta leiðarinnar. Lóa var dregin af Ronju eins og oft áður. Ronja var mjög dugleg ef Sacco vagninn var á undan, annars var hún pínu einmana. Merkilegt hvað vagninn var oft á undan niður brekkurnar og mátti LBK þá hafa sig alla við. Aníta hetja línuskautaði sjálf alla leið, hafði engan hund til að hjálpa sér. Hún fékk aðstoð niður brekkurnar, þá hélt hún sér í vagninn til að stjórna hraðanum.

Ferðin gekk mjög vel og var fólk sammála um að þetta væri skemmtilegur og hæfilega erfiður hringur fyrir línuskauta fólk. Brekkurnar ekki óviðráðanlegar og ekki of margar. Mælum samt með meira flatlendi fyrir þá sem eru að byrja.

Í morgun fór svo LBK með Úlf og Ronju í canicross. Fórum fimm kílómetra og af þeim skokkuðum við 4,5 km. Hundarnir mættu alveg toga meira, full tillitsamir við hlauparann sem væri alveg til í aðeins meira tog. Best er að hafa millitaum í hálsólarnar þegar skokkað er, það heldur þeim betur við efnið en þegar þau hafa meira svigrúm. Spurning hvort togið yrði meira ef hraðar væri hlaupið. Prófum það við tækifæri.

LBK

No comments:

Post a Comment