Tuesday, September 6, 2011

Haustið að koma

Sunnudaginn 4. september hittumst við nokkur á Þingvöllum. Þar var klúbbfundur hjá Sleðahundaklúbbi Íslands. Við gengum ofan í Snjókagjá. Það reyndist meiri þraut en ráð var fyrir gert. Gengum í gömlu grjóthruni, upp og niður endalausar þrautir. Bæði fólk og hundar þurftu að hafa fyrir hlutunum og hugsa út í hvert skref til að ná á fóta sig. Menn skemmtu sér vel en sumir hundar áttu erfitt með að sætta sig við ósköpin. En allir komust samt á leiðarenda. Fólk hjálpaðist að við að koma hundum yfir mestu hindranirnar. Það var ekki auðvelt þegar hundur vildi alls enga hjálp, bara snúa við í hvelli. Erfiðast var þegar fólk var með tvo hunda. Þá var gott að eiga góða að sem gátu hjálpað yfir erfiðu hjallana.

Það voru glaðir og sælir félagar sem stigu upp úr gjánni og gengu tilbaka eftir góðum göngustíg. Baldvin gekk með Úlf, Lóa með Ronju, Olga með Rökkvu og Hrímu og Jökull með Zizou og Keano. Þar sem Keano var ekki að skilja þörfina fyrir að fara þessa leið var ákveðið að BH tæki Ronju með Úlfi og Lóa tæki Zizou. Jökull og Keano tóku svo slaginn saman og rakkinn jafnaði sig þannig að eftir var tekið. Var pollrólegur í lokin og virtist til í aðra ferð.

Það var þvílíkt blíðskaparveður og 14° hiti. Fólk var rennsveitt eftir þennan skemmtilega göngutúr. Alltaf gaman að fá svona framlengingu á sumrinu.

LBK

No comments:

Post a Comment