Síðustu helgi var keppnin mikla á Þingvöllum. Við skunduðum þangað og tókum þátt. Baldvin og Teddi tóku þátt á laugardaginn. Teddi og Rökkvi kepptu í bikejöring og náðu sér í annað sætið. Baldvin var dreginn á keðjulausu hjóli af Hrímu og Úlfi. Þau stóðu sig vel bæði tvö upp brekkuna sem ætlaði engan endi að taka. Þegar um fjórir kílómetrar voru eftir kom eitthvað uppá með Hrímu. BH tók á það ráð að kippa henni í fangið og lét Úlf um að draga þau á hjólinu í mark, sem hann gerði. Þau náðu líka öðru sæti í sínum flokki. Við vorum afskaplega lukkuleg með árangur dagsins og hlökkuðum til að mæta í canicross á sunnudeginum.
Orri hljóp með Karki tíu kílómetra í karlaflokki. Baldvin hljóp tíu kílómetra í karlaflokki ásamt Ronju. Hún átti að vera heima þennan dag því hún er ansi mistæk. Til stóð að BH myndi hlaupa með Leloo. En þar sem Hríma var sár á loppunum eftir hlaupin daginn áður á grófu undirlaginu var endurraðað í teymi. Baldvin hljóp því með Ronju eins og áður sagði og stóð hún sig svona fanta vel. Dró betur en rakkarnir sem slegist var um áður. Olga hljóp með Leloo tíu kílómetra í kvennaflokki. Lóa og Úlfur fóru saman fimm kílómetra.
Hlaupið var í geysilega fallegu umhverfi í haustlitunum á Þingvöllum. Það hellirigndi á hlauparana sem voru ansi blautir er þeir komu í mark. Liðið er hæstánægt með árangur dagsins. Baldvin var í fyrsta sæti með Ronju og Orri í þriðja sæti með Karki í tíu kílómetra canicross karla. Olga nældi í annað sætið ásamt Leloo í tíu kílómetra canicross kvenna. Lóa náði svo fyrsta sætinu í fimm kílómetra canicross kvenna ásamt Úlfi.
Ekki má gleyma öðrum liðsfélögum sem lögðu hönd á plóginn. Sara stóð sig vel í mótsstjórn. Sá um ásamt rösku fólki að allt gengi hratt og vel fyrir sig. Alexandra og Rósa aðstoðuðu hlaupara og hjólafólk með hundana þegar þess þurfti og var gott að hafa þær til að létta undir með keppendum. Viktor og Anney komu og fylgdust með og voru í klappliðinu ásamt Alexöndru og Rósu.
Mótið var vel heppnað og skemmtilegt. Þrátt fyrir hressandi veður, smá rigningu á sunnudeginum og blástur báða dagana, skemmtu allir sér vel og eru sáttir eftir góða keppni þessa helgi.
Tíma keppenda er hægt að sjá á Sleðahundar.is
Takk fyrir okkur :o)
LBK
No comments:
Post a Comment