Í gærkvöldi var brunað á þremur sleðum eftir göngustígum hér í Mosfellsæ. Ronja, Úlfur, Leo og Keano og voru spennt fyrir einn sleða. Orri tók þau að sér og var tekin á Ippon yfir sleðann og í götuna. Ekki þægileg bylta en hann lifði af. Gangstéttakantar eru eitthvað til að vara sig á í framtíðinni. Baldvin tók yfir sleðann og hélt áfram. Sara var með fimm hunda spennta fyrir hennar sleða og gekk það vel. Rökkvi sem stendur alltaf fyrir sínu, Sparta, Jaki, Nala og fleiri drógu hana. Rökkva, Hríma, Karkur og Zizou drógu þriðja sleðann og stóð Olga á honum.
Þetta gekk ljómandi vel, Jökull og Lóa tóku sitt hvorn sleðann, hjá Olgu og Baldvin, og fóru í kringum nesið hér fyrir neðan. LBK fór svo með Úlf, Leo, Ronju og Keano tilbaka í Leirutangann. En Hildur Hörn tók við af Jökli með Rökkvu, Hrímu, Kark og Zizou tilbaka í Leirutangann. Á meðan Teddi tók við af Söru. Allir skemmtu sér vel og var krónískt bros á öllu liðinu, bæði hundum, kúskum og meðhjálpurum.
Gott að taka það fram að þegar verið er að leika sér á kvöldin í myrkrinu þá munar miklu að hafa ljós á taumum, höfuðljós á fólki, ljós á sleðum og hunda og menn í endurskinsvestum.
Í dag hélt svo sami hópur í Heiðmörk með þrjá sleða og sautján hunda. Sara var með Jaka, Rökkva, Nölu, Spörtu og einn til. Það gekk vel að fá hundana til að draga sleðann. Baldvin og Jökull voru hugaðir og spenntu átta stykki fyrir framan sinn sleða. Best gekk að hafa Rökkvu og Hrímu fremst, Leo og Úlf aftast og í miðju teymi voru Keano og Zizou saman og Ronja og Karkur. Karkur var flautaður útaf. Hann þarf smá meiri tíma til að venjast þessu öllu saman. Ronja var því ein meira og minna alla leið. Karkur var settur inná aftur í lokin og gekk þá miklu betur, mun sáttari. Kannski skipti máli að þá var Orri kúskur, gott að heyra kunnuglega rödd.
Enn einn sleði var með í för. Þekki ekki nöfnin á öllum hundum (það stendur til bóta) en veit að Klaki, Samoyed, var einn af þremur þar. Það var verið að hrista hópinn saman og verða þeir hundar fljótir að tileinka sér þetta.
Ferðin gekk vel og voru allir brosandi út að eyrum eftir tveggja tíma útiveru með skemmtilegu fólki og frábærum hundum. Það verður meira og meira gaman eftir því sem fleiri taka þátt og fleiri hundar verða vanir að draga byrðar.
Liðsmenn Siberian Express eru sannfærðir um að það verði fullt af snjó í vetur og okkur hlakkar mikið til að leika okkur í honum öllum stundum.
LBK
No comments:
Post a Comment