Fórum aftur í dag í Heiðmörk. Nota snjóinn á meðan hann er hérna á höfuðborgarsvæðinu. Orri og Rósa, Baldvin, Lóa og Karlotta tóku Úlf, Ronju, Leo, Kark, Zizou, Keano, Hrímu og Rökkvu og tvo sleða. Siggi kom með Foldu og Funa til að athuga hvort þetta væri svona gaman. Funa og Folda skelltu sér fyrir framan léttari sleðann spennt að prófa. Lóa tók að sér að standa á sleðanum til að byrja með. Orri og Karlotta réðust í stærra verkefnið - stærri sleðinn og átta hundar.
Þetta gekk ljómandi vel. Folda og Funi voru ansi spræk á eftir stóra sleðanum. Karlotta hafði nóg að gera við að losa flækjur eða hjálpa hundunum aftur af stað eftir smá stopp. Siggi tók fljótt við stjórninni á minni sleðanum og skemmti sér ansi vel með sínum hundum. Hugsa að hann sé fallinn fyrir sportinu líkt og við hin núna. Lóa tók þá við stóra teyminu eftir að Orri hafði sýnt fram á að þetta væri ekki eins mikil bilun og maður gæti haldið. Karkur karlinn var ekki alveg sáttur, kannski ekki furða með litla skessu sér við hlið. Hann tók sér smá pásu og var Ronja þá bara ein eftir í þeirra plássi. Ekki er hægt að segja að hún hafi staðið fyrir sínu, snillingur í að slaka á sinni línu og láta aðra hunda um erfiðið.
Karkur kom tvíefldur tilbaka eftir nokkra stund og var Ronja þá flautuð útaf fljótlega því hún var frekar slöpp í skapinu. Karkur ætlar í æfingabúðir í minna teymi. Vill fá betri tíma til að venjast þessum látum. Og svo má ekki gleyma að verðlauna hann vel og mikið í lok stuttra æfinga :o) Þá verður hann öflugur karlinn. Ronja hins vegar... vitum ekki alveg hvað á að gera við svona primadonnur. Hún veit það reyndar alveg - hún myndi helst vilja vera með svipu á sleðanum og stjórna hersingunni.
Fórum átta kílómetra í dag, heldur styttra en í gær vegna umferðar í jólaþorpið, og vorum verulega sátt eftir tveggja tíma útiveru með loðboltunum. Og auðvitað allir spenntir að drífa sig aftur fljótlega.
LBK
No comments:
Post a Comment