Fórum "Iron will" í kvöld. Heiðmörkin í snjónum og myrkrinum. Olga leiddi hópinn með tíkurnar sínar tvær. Þær báðar að lóða svo það var viðbúið að rakkarnir sem á eftir komu væru sprækir. Fórum hluta leiðarinnar eftir veginum í hjólförum. Olga hafði aðeins fyrir því þarna uppeftir. Lóa kom á eftir henni með sín þrjú, hafði ekkert fyrir þessu, nema þá helst að halda sér á sleðanum. Rakkarnir flugur áfram í veikri von um komast í návígi við tilkippilegar tíkur. Siggi og Rósa komu svo á eftir með sín þrjú. Funi og Karkur unnu saman í fyrsta sinn og það gekk vel um leið og þeir fóru að vinna og drógu sleðann.
Fórum svo inn á göngustíginn þar sem við erum vön að hefja ferðina. Færðin var verulega þung en gekk þokkalega. Olga hleypti Lóu framúr til að fá smá hvatningu fyrir sína hunda. Það er erfitt að vera fremstur alla leið. Þegar við komum að bílastæðinu þarna neðar beið aðstoðarfólkið á hliðarlínunni eftir hópnum. Rósa hélt áfram ein með sitt teymi þaðan og Siggi varð eftir. Það gekk töluvert mikið betur eftir að búið var að létta sleðann.
Færðin var skuggalega þung víðast hvar og
ef kúskurinn ætlaði að hjálpa til og ýta eða hlaupa með mátti hann oft hafa sig
allann við að komast aftur á sleðann. Var bara að halda aftur af hundunum. Því
hann endaði upp að hnjám í snjó og tafði þau bara.
Ferðin reyndi þokkalega á bæði hunda og menn. En bæði hundar og menn fóru létt með þetta engu að síður og skemmtu sér vel. Ferðin gekk vel og verður klárlega endurtekin á morgun.
LBK
No comments:
Post a Comment