Við hittumst nokkur ásamt félögum úr Sleðahundaklúbbnum í Heiðmörk í gær. Frábært veður, skemmtilegt fólk og hraustir hundar. Allir hjálpuðust að við að koma hundum fyrir framan sleðana. Allir með fjóra til fimm hunda. Það er alltaf skemmtilegt að fylgjast með spenningnum sem myndast hjá hundunum á meðan þeir bíða eftir því að mega leggja af stað. Spangól er ekki óalgengt, þegar einn hefur upp raust sína má treysta því að hinir taka undir af innlifun.
Baldvin fór af stað með Ronju, Úlf, Leo og Zizou. Við köllum þessa leið í gegnum skóginn "Iron will" því þetta er umhverfi sem minnti fólk á bíómyndina. Orri fór á eftir honum með Kark, Hrímu, Rökkvu og Keano á sleðanum hennar Olgu. Svo fór hver sleðinn á fætur öðrum. Þorkell með Huginn og Sisku okkar (hans Viktors), Anna Marín með fimm hunda og farþega og svo loks Siggi með fjóra viljuga hunda.
Það er mjög gaman að horfa á eftir fólkinu inn í skóginn og leiðin er mjög skemmtileg en jafnframt nokkuð krefjandi fyrir kúskinn. Göngustígarnir eru mjóir og því gott að vera vel vakandi. Þeir sem ekki voru á sleða keyrðu á planið fyrir ofan Vífilstaðavatn til að taka á móti hersingunni. Þau komu öll skælbrosandi með spræka hunda inn á planið. Ferðin hafði gengið vel hjá öllum. Orri lenti í smá óhappi þar sem sleðinn lenti á fyrirstöðu með þeim afleiðingum að hann flaug fram yfir stýrið og á sleðann. Við það brotnaði framboginn. Heppilegt að handlagnir smiðirnir verða ekki lengi að bjarga því og sleðinn verður eins og nýr fyrir jólin.
Stóri sleðinn var tekinn af toppnum og brotni sleðinn settur á toppinn. Hundarnir settir fyrir framan nýjan sleða og áfram hélt Orri að Vífilstaðavatni og svo í kringum það. Lóa tók við teyminu af BH og kláraði ferðina með hundunum. Rósa tók við af Orra eftir hringinn í kringum vatnið og kláraði ferðina.
Baldvin hljóp með Elínu, sem stóð á sleða í fyrsta sinn, í kringum Vífilstaðavatn. Hún hafði þannig aðstoð ef á þurfti að halda og fékk hagnýtar upplýsingar um hvað væri gott að hafa í huga sem kúskur. Auðvitað gekk ferðin eins og í sögu og hún fór létt með þetta.
Ferðin sóttist vel hjá öllum og fólk afskaplega ánægt með hundana sem kláruðu 10 kílómetra ferð án vandræða.
LBK
No comments:
Post a Comment