Wednesday, February 22, 2012

Það er gott að hjóla í Kópavogi

Eftir matinn í gær hittumst við í Kópavoginum og tókum hjólatúr með hundana hefðbundinn hring, u.þ.b. 12 km. Hundarnir mættu allir og pöruðu sig tveir og tveir  á hjól. Orri var með Keano og Kark. Karkur rólegur eftir góða spretti fyrr um daginn í lausagöngu og Keano var sáttur við að taka hringinn svona á tempói, rólegu tempói. Olga fékk aðstoð Hrímu og Ronju og stóðu þær sig nokkuð vel en róuðust aðeins seinni helming leiðarinnar. Lóa var á keðjulausu lestinni og byrjaði með Zizou og Leo. Þau voru nokkuð spræk í upphafi en Leo þurfti aðeins að beita sannfæringarkrafti á Zizou og dró hana eiginlega ásamt því að draga hjólið. Baldvin byrjaði með aðstoð Úlfs og Rökkvu. Þau eru alltaf spræk og stungu hina af nokkuð sannfærandi.

Um miðja vegu biðu Baldvin og Olga eftir Lóu og Orra til að taka stöðuna á öllum. Lóa og Baldvin ákváðu að skipta um teymi því Leo var í raun einn um að draga keðjulausa hjólið og Zizou. Lóa var þannig send af stað með Rökkvu og Úlf sér til aðstoðar. Ekki lengi að láta sig hverfa og hélt forystunni allan tímann. ipod í eyrun og svona dráttarvélar fyrir framan hjólið getur ekki klikkað. Eina sem vantaði kannski var svona mótórhjólahjálmur. Þannig að hægt væri að draga hlíf fyrir andlitið. Krafturinn var slíkur hjá Rökkvu sérstaklega að drullan af göngustígum spíttist í andlitið á þeim sem sat á hjólinu.

Ferðin gekk vel hjá öllum, mishratt þó. Lóa var komin, ásamt Rökkvu og Úlfi, á áfangastað góðum tíu mínútum á undan Baldvini með Zizou og Leo. Fimm mínútum seinna komu svo Orri og Olga með Kark, Keano, Ronju og Hrímu.

Við erum að komast í gírinn og orðin góð í að muna eftir hjálmum, ljósum og endurskinsvestum á menn og hunda. Hundarnir verða komnir í gott (betra) form mjög fljótlega.

LBK

No comments:

Post a Comment