Friday, February 24, 2012

Samvinna

Saumavélarnar voru settar upp á borð í gærkvöldi. Haldið var áfram þar sem frá var horfið síðast. Það hefur ýmislegt gerst síðan við byrjuðum að sauma sjálf. Nokkrir komnir með D-beisli. Þau eru verulega svöl og eigendur þeirra sáttir við útkomuna. Keano og Zizou komin með D-beisli í fyrsta sinn og þau taka sig vel út með þau. Keono með blátt og Zizou með svart. Leo var búinn að fá eitt appelsínugult til að vera í stíl við hina villingana á hans heimili. Einnig höfum við saumar D-beisli í fánalitunum. Kepptum með þau á Þingvöllum í haust og með tauma í fánalitunum í stíl. Kom mjög vel út :)

Ekki má gleyma að Rebbi (íslenskur/border collie) fékk svart D-beisli. Hann er sérstaklega kátur með það og stefnir ótrauður á verða topp sleðahundur.

Í gær var loksins lokið við vinnuna á mittisbeisli fyrir kúskinn. Okkur hlakkar mikið til að prófa það og finna hvernig það virkar. En við vitum nú þegar að það lítur afskaplega vel út og við erum ánægð með hönnunina á því. Prófunin verður einföld. Kúskur setur mittisbeltið á sig og tengir í það taum, í tauminn verða svo Úlfur og Leo spenntir. Eftir smá göngutúr með þá félaga fyrir framan ætti að vera ljóst hvort mittisbeltið þoli álagið og hvort bakið á kúsknum verði í lagi á eftir.

Í gær var lokið við að sauma eitt X-beisli fyrir tík. En búið er að undirbúa þrjú önnur sem á eftir að sauma saman. Einnig er búið að gera undirvinnuna fyrir fjögur X-beisli fyrir rakka, bara eftir að sauma þau saman. Það var því ákveðið að hittast aftur í kvöld til að sauma meira. Það er betra að hamra járnið á meðan það er heitt og sérstaklega þegar maður man svona u.þ.b. hvernig best er að gera hlutina. Erfitt þegar alltaf þarf að hugsa "hvernig var best að vinna þetta verk?"

Þetta gengur hratt og vel því allir hjálpast að. Olga og Lóa hafa saumað, Baldvin hefur mikið séð um hönnun og hugmyndavinnu, Jökull, Kristín, Rósa og Orri hafa verið öflug í að sníða og títiprjóna. En svo eru allir í öllu þess á milli. Nema Lillý, hún hefur helst séð um verkstjórn og passað að allir hafi nóg að gera.

LBK

No comments:

Post a Comment