Galvösk mættum við nokkur á sunnudaginn var á hitting hjá Sleðahundaklúbbnum. Mæting var góð og gaman að sjá hversu margir voru mættir með hjólin nú þegar snjórinn er farinn... í bili. Siberian Express fólk mætti með Sacco vagninn, um að gera að nota hann þegar svo viðrar. Orri settist í vagninn en Baldvin stóð aftan á og hljóp með þegar á þurfti að halda. Fjórir hundar voru fengnir til að draga þá félaga. Leo og Úlfur voru í grindunum en Hríma og Rökkva hlupu fyrir framan þá í taumi. Þetta gekk ágætlega. Kristín hjólaði með Keano, en Zizou aðstoðaði Kark við að draga hjólið hennar Rósu.
Mikill spenningur var í hundunum að leggja af stað, smá röfl og spangól. Ákveðið var að drífa þá af stað sem voru tilbúnir. Það gekk vel þannig að fljótlega þagnaði kórinn á Olís við Ánanaust. Hundarnir sáttir við að fá að hlaupa. Eftir stóðu Ronja og Lóa... og keðjulausa lestarhjólið - ekki svo góð blanda. Ronja pollróleg yfir þessum látum öllum saman og sennilega glotti hún aðeins þegar Lóa ákvað að láta á það reyna að setjast á hjólið með hana í taumnum fyrir framan. Á sekúndubroti var manneskjunni ljóst að þetta myndi ekki ganga vel. Hún yrði að "hlaupa" þetta sjálf á hjólinu ef þetta teymi ætti að komast eitthvað áfram. Þannig að skipt var allsnarlega um gír, stigið af hjólinu og tíkurnar tvær, Lóa og Ronja, tóku létta göngu meðfram sjónum að höfninni og skoðuðu skipin sem þar lágu og lífið í kring. Báðar sæmilega sáttar, þessi fjórfætta þó sennilega mun sáttari en þessi með tvo fætur.
Ákveðið var að fara að vitanum og svo aftur tilbaka að bensínstöðinni. Það leggst misvel í hundana, Zizou t.d. sá ekki tilganginn með því að fara sömu leið tilbaka. Varð frekar löt og Karkur hafði sennilega meira fyrir því að draga hana en hjólið. Það virkar alltaf best að fara hring þegar verið er að hreyfa þau. En þau stóðu sig vel og mannfólkið þurfti ekki að hafa of mikið fyrir þessari ferð. Viss um að Ronja hafi sagt loðnu vinum sínum sögur af fuglunum við sjóinn, fiskikörum sem því miður, fannst henni, voru tóm.
Okkur hlakkar til að hitta allt þetta skemmtilega fólk að tveimur vikum liðnum, erum sannfærð um jafngóða, ef ekki betri, mætingu.
LBK
No comments:
Post a Comment