Wednesday, February 15, 2012

Tími til kominn

Keppni á Mývatni framundan og það er að renna upp fyrir okkur að tíminn er fljótur að líða. Þess vegna brýndi Kristín röddina og skipaði fólki að hefja æfingar. Það er ekki langur tími til stefnu og var fyrsta formlega æfingin í gær. En Kristín hins vegar mætti ekki... sendi bara hundana á staðinn með þeirri tilskipun að það ætti að láta þau hlaupa og gefa svo skýrslu í lok æfingar. Að sjálfsögðu var það gert.

Við ákváðum að stokka þetta aðeins upp. Allir voru á hjólum, það viðrar svo vel til að hjóla. Þurfum aðeins að vinna betur í því að vera alltaf rétt útbúin og tímanlega á staðinn :) T.d. voru ekki allir hundar í endurskinsvestum, það ætti að vera innbyggt í okkur mannfólkið að sjá til þess að svo sé. Einnig ættum við sjálf öll að vera í endurskinsvestum og með hjálma. Því var aðeins ábótavant en stendur til bóta. Höfuðljós eða ljós á hjólið ætti einnig að vera staðalbúnaður og á ekki að gleymast. Á næstu æfingu verða þessi atriði í lagi hjá okkur.

Á þessa fyrstu æfingu mættu átta hundar og fimm manneskjur. Olga hjólaði með Hrímu og Úlf, Baldvin var með Leo og Keano á keðjulausu hjóli, Karkur og Rökkva drógu Orra en Ronja og Zizou drógu Lóu. Rósa ákvað að hjóla sjálf og "héraði" ef á þurfti að halda, smá hvatning virkar stundum ágætlega. Allir hundarnir stóðu sig prýðilega. Við erum þó öllu nær um hverju þarf að vinna betur í og þjálfa fyrir komandi keppni. Við sem ekki ætlum að kúska liðið á Mývatni erum mest spennt fyrir að koma kúskunum í keppnisform. Það eru nefnilega ekki aðeins hundarnir sem þurfa að byggja upp þol og keppnisanda, heldur þarf sá sem stýrir teyminu og stendur á sleðanum að vera í góðu líkamlegu formi líka.

Það mæltist vel fyrir að stokka hundunum svona upp og sjá hvernig þau vinna með öðrum en þau eru vön. Fólk sammála um að halda því áfram. Næsta æfing verður fljótlega, það þarf að hreyfa hundana daglega og því ætti ekki að vera mikið mál að nota hreyfingu dagsins í uppbyggilega þjálfun fyrir Mývatn í mars.

LBK


No comments:

Post a Comment